Það getur verið freistandi að fá sér eitthvað gott í gogginn áður en haldið er til náða. Ný rannsókn bendir hins vegar til þess að þessi hversdagslegi vani geti haft óæskileg áhrif á heilsuna og meðal annars tengst aukinni hættu á alvarlegum lifrarsjúkdómum.Í rannsókninni, sem birtist í vísindatímaritinu Clinical Gastroenterology and Hepatology þann 10. október, voru skoðuð gögn um hátt í 200 þúsund einstaklinga úr þremur rannsóknum.
Ný rannsókn varpar ljósi á hættuna við að borða seint á kvöldin