Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
Alþjóðleg skýrsla segir að stefna stjórnvalda dugi ekki til að vernda 30 prósent lands og hafsvæða fyrir árið 2030. Ríki ræða stöðuna á COP17 í Armeníu í næstu viku.
António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að „stríðinu gegn náttúrunni sé ekki enn lokið“ þegar hann kynnti skýrslu sem sýnir að ríki heims standi ekki við skuldbindingar sínar um líffræðilega fjölbreytni.
Ríki heims munu fara yfir árangur og hindranir á leið að markmiðinu um að stöðva eyðingu náttúrunnar fyrir árið 2030 þegar þau koma saman í Armeníu í næstu viku til viðræðna Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.
Fyrir fjórum árum gerðust nærri 200 ríki aðilar að hinu tímamótasamkomulagi sem kallað hefur verið „Parísarsamkomulagið um náttúruna“, en hægt hefur gengið að hrinda markmiðum þess í framkvæmd.
Í samkomulaginu eru 23 markmið um að stöðva hnignun náttúrunnar og snúa henni við fyrir árið 2030. Þar á meðal eru markmið um að draga úr mengun, vernda tegundir í hættu og vernda 30 prósent lands og hafsvæða heimsins.
En mörg þessara markmiða eru ekki á réttri leið, sagði Guterres þegar hann …