Áformum Kaldvíkur um sjókvíaeldi í Seyðisfirði hefur verið mótmælt og samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti íbúa þar mótfallinn fiskeldi í firðinum. Líklegt er að ef af áformunum yrði myndu skapast 10 til 15 störf á staðnum.
Hjá Kaldvík starfa alls um 200 manns, þar af um 130 á Austfjörðum og við það bætast afleidd störf, til dæmis í flutningum og viðhaldi. Samkvæmt mati Byggðastofnunar frá 2017 skapast að meðaltali 0,8 afleitt starf fyrir hvert beint starf í fiskeldi á Íslandi.
Samtals hefur Kaldvík leyfi fyrir 53.800 tonna fiskeldi á Austfjörðum en er með um 15.000 tonn í um 70 kvíum um þessar mundir. Kvíarnar eru í Berufirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði.
Störf við fiskeldi hjá Kaldvík eru á Djúpavogi, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Eskifirði.
Reikna má með því að störf við eldi á Seyðisfirði gætu orðið tíu til fimmtán eins og á Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Eskifirði. Stærstur hluti þeirra starfa væri beint við eldið, störf eins og Arnór Magnússon sem er svæðisstjóri í Berufirði leiðir.
„Við erum að sjá til þess að allt sé í góðu standi hérna úti, það er okkar hlutverk að fara út daglega, fara á kvíarnar og sjá hvort allt sé eins og það á að vera,“ segir Arnór.
Fjölmennasta starfsstöð Kaldvíkur er á Djúpavogi, auk starfsmanna við eldisstöð er þar kassaverksmiðja, fóðurstöð, sláturhús og loks skrifstofustörf í stoðdeildum. Elís Hlynur Grétarsson, framkvæmdastjóri vinnslu hjá Kaldvík á Djúpavogi, hefur starfað við fiskeldi þar síðan það tók til starfa. Hann telur áhrif uppbyggingarinnar á samfélagið hafa verið jákvæð.
„Þegar Vísir fór á sínum tíma var ákveðið uppnám í atvinnu hér á Djúpavogi, þá voru margir sem fluttu frá staðnum,“ segir Elís Hlynur.
„Ég myndi segja að eftir 2018 hafi verið mikill uppgangur í byggðarlaginu í heild, fasteignaverð hefur farið upp á við og það eru ekkert nema jákvæðar horfur í samfélaginu. Eins og ég sé það allavega.“
Sjálfvirkni hefur aukist í fiskeldi með tæknibreytingum og nýtingu gervigreindar. Allur eldislax Kaldvíkur er til að mynda fóðraður í gegnum tölvustýrð kerfi frá Djúpavogi.
Forsvarsmenn Kaldvíkur segja að þrátt fyrir tækniframfarir megi í ljósi áframhaldandi vaxtar í greininni gera ráð fyrir að störfum haldi áfram að fjölga.