Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta Alþýðusambands Íslands á morgun. Sólveig segir nokkuð ljóst hvernig sú kosning fari.
„Þetta er kosning sem ég mun tapa og mun ekki vinna, það er alveg ljóst.“
Tillaga miðstjórnar ASÍ um fækkun varaforseta úr þremur í einn var felld á landsþingi sambandsins fyrr í dag. Atkvæðagreiðslan var leynileg, sem er óvenjulegt á landsþingi ASÍ. Um 61% greiddu atkvæði með tillögunni en tvo þriðju atkvæða hefði þurft til að tillagan yrði samþykkt. Aðeins munaði 19 atkvæðum að tillagan yrði samþykkt.
„Sólveig segir þessar niðurstöður varpa skýru ljósi á stöðuna, í raun séu þær spá um hvernig fari á morgun.“
„Rétt rúm 60% sem vilja fækka embættum sem segir okkur allt um stöðuna.“
Staða Eflingar innan ASÍ endurskoðuð
Sólveig segir stöðu Eflingar innan ASÍ viðkvæma, raunar hafi hún verið það um nokkurt skeið. Hún segir að nú standi frammi fyrir Eflingu flókin ákvörðun, hvort Efling eigi að segja skilið við ASÍ.
„Þetta er ekki eitthvað sem ég né félagar mínir myndum rjúka í og við myndum meðhöndla umræðurnar um þetta með þeim alvarleika sem þetta mál á skilið.“