Fjölmörg handtök eru framundan á Siglufirði næstu daga við að meta tjón og taka til eftir óveðrið sem gekk þar yfir í gær. Þök fuku af þremur húsum og ollu tjóni víða um bæinn.
Jóhann K. Jóhannsson er bæði slökkviliðsstjóri og forseti bæjarstjórnar í Fjallabyggð:
„Það er heppni að enginn hafi slasast, það er alveg staðreynd. Þetta eru engir smá flekar sem fara á flug þegar heilu húsþökin lyftast af húsunum og lenda við hliðina á þeim og splundrast með braki og þakplötum sem geta farið út um allt. Það sköpuðust þannig aðstæður víða í bænum í gær.“
Allt ónýtt innandyra
Ásta Gunna Kristjánsdóttir og Steinarr Steinarsson komu að húsi sínu við Túngötu gjöreyðilögðu eftir storminn í gær. Ásta sagði í samtali við fréttastofu að ef hún hefði legið í rúminu þegar veðrið gekk yfir væri hún ekki lifandi í dag. Allt sé ónýtt innandyra.
Ásta birti eftirfarandi myndband á Facebook-síðu sinni og er það birt með góðfúslegu leyfi hennar.
Ekki í fyrsta skipti
Aðeins eru þrjú ár síðan að hús sprakk í veðurofsa á Siglufirði, en mælingum Veðurstofunnar og varðskipsins Freyju sem var í höfn bar þá heldur ekki saman.
„Þessi atburður í gær sýnir það enn og aftur að það þarf að athuga þetta mælakerfi. Við höfum átt þetta samtal við Veðurstofuna áður, síðast árið 2023. Þá sprakk hús hér við aðalgötu með gífurlegu tjóni og heppni að þar yrði ekki mannskaði. Mælingar Veðurstofunnar þá sýndu allt aðra tölu og þetta er það nákvæmlega sama og við upplifðum í gær,“ segir Jóhann.
Óveður á þessum slóðum er ekki óalgengt í þessum vindáttum. Veðurstofan hefur síðustu tíu ár skoðað hvernig spá mætti betur fyrir um veður á þessum stað. Veðurmælingastöðin á Siglufirði er við flugvöllinn, spölkorn frá bænum.