Um fátt hefur verið fjallað meira í fréttum dag en óvænta úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Jón var í viðtali við Kastljós á RÚV nú í kvöld og endurtók þar helstu ástæðurnar sem hann gaf upp fyrr í dag fyrir úrsögn sinni en bætti við að alvarlegur vandi innan þingflokksins hefði einnig haft sitt að segja. Miðað við orð Jóns virðast veikindi Sigmars Guðmundssonar fráfarandi þingflokksformanns hafa ýtt undir þennan vanda.
Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans