Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Flutti maðurinn efni til landsins sem er líklega ekki mikið þekkt hérlendis. Flutti hann efnið inn frá Tékklandi, þaðan sem hann er, og að hans sögn til eigin nota. Sagði maðurinn að efnið væri löglegt þar í landi og hafi hann talið að það ætti einnig við hérlendis en svo reyndist ekki vera.Var maðurinn ákærður vegna innflutnings á um tveimur kílóum af efninu kratom. Efnið flutti maðurinn til landsins með pakkasendingu sem tollgæslan lagði hald á.
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt