Samband forseta Úkraínu og Bandaríkjanna hefur súrnað síðustu vikuna eftir að Trump samdi við Pútín um kaup á dísilolíu. Þegar Úkraínuforseti gagnrýndi samninginn sagði Trump Úkraínu þurfa nýjan forseta.
Þá lýsti Trump einhliða yfir hléi á árásum Rússlands og Úkraínu á orkuinnviði á sunnudag. Rússar héldu árásum áfram en Úkraínumenn gerðu hlé í þrjá daga. Zelenský tilkynnti í gær að Úkraínumenn ætluðu ekki lengur að fara að fyrirmælum Trumps og í nótt gerði Úkraínuher árás á olíubirgðastöð Rosneft í Ryazan-héraði. Þar hefur þurft að stöðva starfsemi þrisvar á árinu vegna árása.
Ýmsir hafa litið á samning Trumps við Pútín sem svik við Úkraínu. Zelenský sagði í viðtali við breska fjölmiðlamanninn Piers Morgan í gær að það væri sárt að horfa upp á Trump velja sér aðra samherja en Úkraínu. „Hann má vera á milli, okkar vegna. En þá verður hann að halda sig á miðjunni, ekki röngum megin. Ráðgjöfum hans skjátlast, held ég. Ég veit ekki hver ýtir honum í þessa röngu átt. Þetta er ekki rétta hliðin á sögunni,“ sagði Zelenský í viðtalinu.
Telur framgöngu Trumps svik
Morgan spurði Zelenský hvort honum þætti Trump hafa svikið sig með olíusamningnum við Pútín í síðustu viku, tilkynningu um hlé á árásum á orku og að Rússar hafi strax á eftir gert harðar árásir, einmitt á orkuinnviði. „Já, bara okkar á milli, en þetta er flóknara en að snúast um mínar tilfinningar. Þetta lendir ekki aðeins á mér, heldur á landinu okkar sem þarf að lifa af,“ svaraði Zelenský.
Úkraínumenn hafa sakað bandarísk stjórnvöld um að aðstoða Rússa við árásir því að í fyrrinótt fengu Úkraínumenn ekki upplýsingar í gegnum Starshield-gervihnattasamskiptakerfið um yfirvofandi árásir. Upplýsingarnar nýta Úkraínumenn meðal annars til loftvarna og til að vara almenning við.
Musk segir aðeins stjórnvöld geta breytt virkni Starshield
Rússar gerðu harðar árásir á hverfi og orkuinnviði í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í gær. Fyrirtæki Elons Musks, SpaceX, þróaði Starshield-kerfið. Musk segir að enginn nema bandarísk yfirvöld geti fyrirskipað breytingar á virkni þess, þar hafi forsetinn lokaorðið.
Zelenský hefur sagt bandaríska embættismenn hafa hótað því að hætta að deila leyniþjónustuupplýsingum með Úkraínu verði árásum á olíuinnviði ekki hætt. Trump hefur þrýst mikið á Úkraínumenn að hætta árásum á olíuinnviði í Rússlandi og raunar kennt þeim um hækkandi verð á olíu, þrátt fyrir að það sé almennt rakið til árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Trump þykir ekki hafa þrýst á jafn afgerandi hátt á Pútín og stjórnvöld í Rússlandi að hætta innrásarstríði sínu í Úkraínu.