Össur Skarphéðinsson fyrrum formaður og ráðherra Samfylkingarinnar segir ljóst að úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar sé mikið áfall fyrir flokkinn og verði vart túlkuð öðruvísi en vantraust á forystu hans. Össur segir einnig að Jón hafi einn stjórnarþingmanna og liðsmanna Viðreisnar þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað meðal stjórnarliða og ekki síst innan Viðreisnar, að illa hafi verið staðið að baráttunni fyrir því að já yrði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst.Össur fjallar um þetta á Facebook:
Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar