Fjórir er látnir, þar af þrjú börn, eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-fylki í Bandaríkjunum í kvöld. Að minnsta kosti tveir voru fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús til aðhlynningar.
Árásin varð í Silver Rail-grunnskólanum nærri Portland en í hann ganga börn á aldrinum 5-11 ára. Lögregla hefur ekki gefið upp upplýsingar um árásarmanninn, né aldur fórnarlambanna.
Mikill viðbúnaður lögreglu var á svæðinu og var árásarmaðurinn skotinn til bana á vettvangi. Ekki er ljóst hver varð árásarmanninum að bana. Mögulegt er talið að það hafi verið óbreyttur borgari.
Bandaríska alríkislögreglan aðstoðar við rannsókn málsins.
Fréttin hefur verið uppfærð