Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu manns, sem vikið var úr starfi sínu sem flugmaður, um 78,9 milljóna króna bætur úr skírteinistryggingu, auk dráttarvaxta. Var manninum sagt upp störfum eftir að ýmis konar atvik komu ítrekað upp í kjölfar óhóflegrar áfengisneyslu hans. Vildi hann meina að ekki hefði verið tekið tillit til þess að hann hefði verið greindur með ADHD sem skýrði hömluleysi hans sem ýtti undir drykkju.
Tuga milljóna kröfu brottrekins flugmanns hafnað - Rekinn vegna drykkju og hegðunarvandamála - Umdeild ADHD-greining dugði ekki