Friðrik Dór Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi á rúmlega 15 ára tónlistarferli. En þótt hittarnir hafi verið margir hefur leiðin ekki alltaf verið bein. Eftir fljúgandi start þurfti hann að takast á við vonbrigði þegar næsta plata náði ekki sama flugi.Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Popparasögur ræðir Friðrik Dór um ferilinn, samstarfið við Sinfonia Nord, væntanleg endalok IceGuys, þátttökuna í Söngvakeppninni með lagið „Í síðasta skipti“ og hvernig textarnir hans hafa stundum virkað eins og dagbókarskrif.
Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“