Í tilkynningu frá Vegagerðinni í gær kom fram að ölduhæð myndi ná hámarki um klukkan 21 í gær og að við svipaðar aðstæður í desember í fyrra hefði flætt yfir þjóðveginn.
„Þetta fór betur en á horfðist, gróf aðeins undan, sem betur fer í þetta skipti,“ segir Einar Freyr í samtali við fréttastofu.
Hann segir að það hafi grafið undan Smiðjuveginum og að það þurfi að gera einhverjar örlitlar lagfæringar þar í kjölfar sjávarflóðanna í gær.
„Annars fór þetta betur en á horfðist og við erum að samþykkja núna framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni til þess að fara í flóðvörn, sem maður getur kallað svona skvettuvörn, til að fyrirbyggja að flóð fari upp að þjóðveginum og mannvirkjum.“
Hann segir það ekki framtíðarlausn því landrofið sé verulegt og fjaran styttist og færist nær þjóðveginum og iðnaðarhverfinu sem er á Smiðjuveginum.
Leggja hart að ríkinu
Það þarf að fara í aðrar lausnir og þrautreyndar, að gera sandfangara,“ segir hann og að sveitarfélagið leggi hart að ríkinu að fjármagna slíkar framkvæmdir.
„Ég hef vonir um að menn sjái orðið hættuna sem er aðsteðjandi.“
Hann segir framkvæmdaleyfið sem sé verið að gefa út til að gera flóðvörn til þess að fyrirbyggja að það fari þarna upp að Smiðjuveginum og þjóðveginum. En fjaran er alltaf að færast nær og það eru stærri aðgerðir að fyrirbyggja það en er samt alveg hægt,“ segir hann og að til dæmis sé hægt að byggja grjótgarða út við sjó.
Það hafi verið byggðir tveir svokallaðir sandfangarar út í sjó við Vík og þeir hafi „svínvirkað“.
„Það svæði þar sem þeir eru komnir er tryggt og ekki í hættu. Þar er ekki landrof og þar hafa ekki verið vandræði með flóð. Það er það sem við erum að pressa á ríkið og nú held ég að menn sjái orðið að þjóðveginum stafar hætta af þessu. Það náttúrulega bara snertir líka bara byggðina fyrir austan okkur og allt Austurland í sjálfu sér.“
Staðan enn grafalvarleg
Hann segir stöðuna enn grafalvarlega en sem betur fer virðist sem menn séu vaknaðir til lífsins með það.
„Við erum auðvitað mjög áfram um að það verði eitthvað gert og tilbúin að leggja okkar af mörkum hjá sveitarfélaginu.“
Leist ekkert á stöðuna í gær
Einar Freyr var sjálfur á svæðinu um klukkan 19 í gær.
„Manni leist auðvitað ekkert á þetta. Þegar ég var þarna um sjöleytið og þá hafði þetta nú ekki alveg náð hámarki. Það var gert rof hérna í gamlan veg til þess að reyna að fleyta vatni aðeins frá Smiðjuvegi, sem virðist hafa dugað.“
Hann segir ölduhæðina hafa verið mikla og fólk hafi átt von á því að staðan yrði verri.
„En það er bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum.
Mæla landrof
Einar Freyr segir Kötlu jarðvang, í samstarfi við sveitarfélagið, hafa verið við landmælingar í Vík síðustu ár til að mæla fjöruna og landrofið og það dyljist engum í hvað stefnir.
„Við erum auðvitað að mæla fjöruna, sveitarfélagið í samstarfi við Kötlu jarðvang. Þeir eru að stunda mælingar á fjörunni og hafa verið að því í mörg ár og geta séð sem sagt hversu mikið landrofið er og hefur verið. Það fer ekkert á milli mála hvað er að gerast og hvert þetta stefnir ef ekkert er gert.“