Maðurinn sem lést þegar hann klifraði ofan í gryfju tígrisdýrs í dýragarði í Yorkshire á Englandi hafði lengi glímt við geðræn vandamál.
Breska ríkisútvarpið hefur það eftir vitnisburði réttarmeinafræðings að maðurinn, hinn 24 ára gamli William Chapman, hafi verið greindur með geðklofa og vitað sé að hann oftar en einu sinni farið í geðrof.
Fjölskylda Chapmans hafði ítrekað viðrað áhyggjur sínar af ástandi hans við heilbrigðisþjónustu í heimabæ þeirra, Doncaster, en hann var metinn í nógu góðu jafnvægi til að þurfa ekki á sérstakri umönnun að halda.