Róstusöm mótmæli námsmanna í Albaníu hafa dreift úr sér frá höfuðborginni, Tirana, til smærri borga, en þeir hafa nú í þrjá daga krafist afsagnar forsætisráðherrams, Edi Rama.
Mótmælendur hafa ráðist að opinberum byggingum og þá hefur slegið í brýnu á milli þeirra og lögreglu sem bæði hefur beitt vatnsbyssum og táragasi. 65 mótmælendur voru handteknir á miðvikudaginn og 71 lögreglumaður hefur slasast í átökunum.
Auk þess að krefjast afsagnar Rama kalla námsmenn enn fremur eftir því að stjórnvöld bæti slæma aðstöðu í háskólum og kjör námsmanna sem þurfa að greiða há skólagjöld.