Maður var í gær gripinn á flugvellinum í Bonn í Þýskalandi með meira en 90 eðlur og eitursnáka meðferðis.
Maðurinn er sagður vera 45 ára mexíkóskur ríkisborgari og þótti hann sýnilega taugaóstyrkur á leið sinni út af flugvellinum.
Prufa sem gerð var á manninum reyndist jákvæð fyrir kókaíni en þegar taska hans var opnuð voru það ekki eiturlyf sem blöstu við heldur fjöldi tegunda eiturnaðra, skröltorma og eðla sem faldar voru í snyrtivöruumbúðum, plastboxum og upprúlluðum sokkum.
Hörmulegur aðbúnaður
Talsmaður tollayfirvalda segir í samtali við breska ríkisútvarpið að aðbúnaður dýranna hafi verið hörmulegur og sum þeirra hafi drepist á leiðinni. Þeim sem lifðu af hefur verið komið fyrir á snákabúi í Þýskalandi.
Manninum var meinaður aðgangur inn í landið og var hann sendur aftur til Istanbúl, þaðan sem hann flaug.