Sögukennarar í Kvennaskólanum og Verzlunarskóla Íslands hafa breytt verkefnavinnu nemenda vegna áhrifa gervigreindar. Nemendur vinna nú verkefni í tímum eða skrifa í skjöl þar sem kennarar geta fylgst með framvindunni.
Bændablaðið greindi fyrst frá málinu í viðtölum við kennara skólanna og prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Fylgjast með vinnuferlinu
Hallur Örn Jónsson, sögukennari í Versló, segir kennara fylgjast með ritgerðaskrifum nemenda í Google skjölum.
„Við höfum þurft að endurmeta allar okkar kennsluaðferðir,“ segir hann við Bændablaðið.
Páll Guðmundsson, sögukennari í Kvennaskólanum í Reykjavík, lýsir tímaverkefnum þar sem nemendur bera saman heimildir og skrifa eigin niðurstöður. Hann segir gervigreind meðal annars geta vísað í heimildir sem eru annaðhvort einfaldlega ekki til eða rangar og því geti yfirferð verkefna tekið lengri tíma.
Óheimil notkun getur leitt til falls
Í reglum Kvennaskólans kemur fram að nemendur verði að fylgja fyrirmælum kennara um notkun gervigreindar. Sé nemandi staðinn að óheimilli notkun verði úrlausnin ekki metin og hann teljist fallinn í verkefninu eða prófinu.
Skólinn tekur jafnframt fram að gervigreind geti nýst til stuðnings í námi, meðal annars við að ræða námsefni og fá endurgjöf. Nemendur þurfi þó að sannreyna heimildir og leita samþykkis kennara fyrir notkuninni.
Gera grein fyrir notkuninni
Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ, segir nemendur þar gera grein fyrir notkun gervigreindar. Heimilt sé að nýta hana við textayfirferð.
Samkvæmt leiðbeiningum HÍ setja kennarar viðmið fyrir eigin námskeið og verkefni. Þau eiga að koma skýrt fram í kennsluáætlunum og verkefnalýsingum.
Í leiðbeiningum háskólans til nemenda er áhersla lögð á að verkefni endurspegli eigin skilning, röksemdafærslu og vinnu. Nemendur þurfi sjálfir að geta útskýrt og rökstutt það sem þeir skila undir eigin nafni.