Landsmenn mega búast við nokkuð dæmigerðu haustveðri í dag, nokkrum vindi og lítilsháttar skúrum. Á landinu austanverðu er þó útlit fyrir að það verði víða þurrt og bjart.
Á morgun byrjar að hvessa og rigna hressilega og þá er viðbúið að aðstæður til ferðalaga geti orðið varasamar. Á sunnudag verður stormur og úrhellisrigning á sunnan- og vestanverðu landinu.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðvestan 8-13 m/s í dag og lítilsháttar skúrir, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti víða 4 til 10 stig.
Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Sunnan og suðaustan 15-25 m/s síðdegis á morgun með talsverðri rigningu, hvassast vestantil, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig.