Grænlandsþing hefur einróma samþykkt þingsályktunartillögu um að grænlenska ríkisstjórnin skuli útfæra bann við námugreftri á djúpsævi. Þetta kemur fram á heimasíðu grænlenska þingsins.
Lagt er til að bannið gildi til 31. desember 2029 með möguleika á framlengingu annað hvert ár.
Ríkisstjórnin hefur jafnframt tilkynnt að ákveðið hafi verið að frumvarp um bannið verði lagt fram á vorþinginu 2027.
Athygli vekur að tillagan var lögð fram degi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf út yfirlýsingu um að umfangsmikil leit að olíu, gasi og málmum væri hafin á Grænlandi en vert er að nefna að hann minntist ekki sérstaklega á námugröft á hafsbotni.