Þetta segja spár Veðurstofunnar. Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Talsverð rigning á morgun. Sunnan og suðaustan fimmtán til tuttugu og fimm metrar á sekúndu síðdegis, hvassast vestantil en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti verður þá á bilinu sjö til þrettán stig.
Vaxandi sunnanátt og dálítil væta um helgina en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Áfram hvasst og talsverð rigning.