Árásin átti sér stað í gær og greinir BBC frá. Árásarmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur en hann braust inn í Silver Rail-grunnskólann með því að skjóta á læstar hurðar. Að því búnu hófst skothríð í skólanum.
Börnin þrjú sem létust voru fimm, átta og ellefu ára. Kennarinn var á sextugsaldri. Samkvæmt BBC var það vegfarandi sem skarst í leikinn, elti árásarmanninn inn í skólann og skaut hann til bana áður en lögregla kom á vettvang.
Óljóst er hvort árásarmaðurinn hafi einhver tengsl við skólann sem var lokað um tíma og fékk enginn að fara inn eða út úr byggingunni.
Skólinn er í yfir 160 kílómetra fjarlægð suðaustur af Portland. Alls voru 459 nemendur skráðir þar á síðasta ári, samkvæmt menntamálayfirvöldum í Oregon. Skólinn er fyrir nemendur frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk.