Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90% foreldra þáðu mótefni fyrir börn sín og varð fækkun á staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum vegna veirunnar hjá aldurshópnum samhliða því.
RS-veiran er öndunarfæraveira sem gengur yfir vetrartímann og leggst þungt á börn á fyrsta aldursári. Sýking af völdum veirunnar er algengasta ástæða innlagnar barna á sjúkrahús um alla Evrópu.
Í grein sem Valtýr Thors, barnasmitsjúkdómalæknir Barnaspítala hringsins, skrifaði hér á Vísi segir að undanfarin ár hafi 150-200 börn á fyrsta aldursári leitað á Barnaspítalann og allt að 60 þurft að leggjast inn á spítalann. Síðastliðinn vetur hafi aðeins tvö börn yngri en sex mánaða þurft á innlögn að halda og voru þau útskrifuð sólarhring síðar.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins hvetur heilbrigðisráðherra foreldra til að þiggja bólusetningu fyrir börn sín.