Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, er allt annað en sáttur við ákvörðun Jóns Gnarr um að segja skilið við Viðreisn en sitja áfram á Alþingi sem óháður þingmaður.Kristján telur að þingmenn sem yfirgefa flokk sinn eigi jafnframt að láta af þingmennsku. Hann gerir málið að umtalsefni í harðorðri færslu á Facebook.„Hvaða skrípaleikur er þetta á Alþingi?“ spyr hann og lætur síðan gamminn geisa.„Ef hann hættir í flokknum, þá hættir hann og fer af Alþingi. Hann komst á þing vegna þess að hann var kjörinn til þess og flokkurinn valdi hann.“
Fiskikóngurinn æfur yfir ákvörðun Jóns Gnarr – „Meira helvítis ruglið þarna“