Annar af stærstu hluthöfum Ölgerðarinnar, Bogi Þór Siguroddsson, segir að hann taki umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um fyrirtækið alvarlega. Bogi segir að hann telji að fyrirtæki eigi ekki aðeins að fara að lögum heldur að þau eigi einnig að starfa samkvæmt anda laganna. Hann segir að heilbrigð samkeppni í viðskiptum sé grundvallaratriði.
Í svari til fréttastofu um mat hans á rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Ölgerðinni og meintri misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu segir Bogi meðal annars: „Auðvitað tek ég umfjöllunina um samninga og sölufyrirkomulag Ölgerðarinnar mjög alvarlega. Mér finnst mikilvægt að rannsókn Samkeppniseftirlitsins fái að hafa sinn gang, en get í raun fátt annað sagt á þessum tímapunkti.“
Svör Boga við spurningum fréttastofu bárust í tölvupóst.
Slíkir samningar aldrei fyrir stjórn segir Bogi
Bogi er stærsti hluthafi Ölgerðarinnar ásamt eiginkonu sinni Lindu Björk Ólafsdóttir. Þau eiga félögin Bóksal ehf. og Sindranda ehf. sem samtals eiga rúmlega 20 prósenta hlut í Ölgerðinni. Bogi var um tíma stjórnarformaður Ölgerðarinnar. Þau Bogi og Linda áttu 4 prósenta hlut í Ölgerðinni árið 2021 en það ár bættu þau við sig 10 prósenta hlut og hafa síðan keypt meira í félaginu.
Bogi segir í svörum sínum að á meðan hann var stjórnarformaður Ölgerðarinnar hafi þess konar einkaréttarsamningar og eru til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu aldrei komið inn á borð stjórnarinnar. „Á þeim tíma sem ég sat í stjórn Ölgerðarinnar komu samningar af því tagi sem nú eru til umfjöllunar hvorki inn á mitt borð né voru lagðir fyrir stjórn félagsins. Mér finnst rétt og eðlilegt að stjórnendur Ölgerðarinnar hafi ákveðið að taka þá til skoðunar og vona að öllum vafa verði eytt um réttmæti þeirra. Það er í þágu allra að málið verði upplýst og að félagið bregðist við með viðeigandi hætti reynist tilefni til.“
Bogi og Linda eiga líka fyrirtækið Fagkaup sem er stórveldi á sviði þjónustu við iðnað og byggingu fasteigna hér á landi. Fagkaup á meðal annars rafverktakafyrirtækið Johann Rönning, verkfærafyrirtækið Sindra, pípulagnafyrirtækið Vatn og Veitur og Áltak sem sérhæfir sig í klæðningum utan á hús svo aðeins nokkur dótturfélög séu nefnd.
Í gegnum árin hafa þau ítrekað verið meðal hæstu skattgreiðenda landsins.
Bogi segir að gott siðferði í viðskiptum sé mikilvægt
Bogi hefur um áratugaskeið verið þekktur í íslensku viðskiptalífi. Hann var forstjóri Húsasmiðjunnar í byrjun aldarinnar og stefndi á að kaupa fyrirtækið. Af því varð hins vegar ekki.
Árið 2002 gaf Bogi út bók um það hvernig hann taldi að hann hefði verið svikinn í þessum viðskiptum með Húsasmiðjuna og að þessi svik hefðu verið ósiðleg. Bókin hét Fjandsamleg yfirtaka – átakasaga úr íslensku atvinnulífi. Þessi bók vakti mikla athygli og var fjallað um hana víða í fjölmiðlum. Í umræðum í fjölmiðlum um bókina talaði Bogi talsvert um siðferði í viðskiptum. Hann ræddi meðal annars um það að ekki væri nóg að fylgja lögum heldur þyrfti siðferði í viðskiptum líka að vera gott.
Fréttastofa spurði Boga um þessa bók sem hann skrifaði fyrir rúmum tveimur áratugum og hvort hann væri enn þá á sömu skoðun um mikilvægi siðferðis í viðskiptum í ljósi frétta um viðskiptahætti Ölgerðarinnar.
Bogi segir að svo sé: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt: Fyrirtæki eiga ekki aðeins að starfa innan ramma laganna heldur einnig í anda þeirra. Heilbrigð samkeppni, sanngirni og ábyrgð í viðskiptum eru grundvallaratriði í mínum huga. Það á jafnt við um Ölgerðina sem önnur félög.“
Bogi segir að hann muni styðja allar breytingar á rekstri Ölgerðinnar til að tryggja að starfshættir fyrirtækisins standist skoðun í framtíðinni: „Sem stór hluthafi legg ég ríka áherslu á að Ölgerðin njóti trausts og virðingar. Ég mun því styðja allar þær breytingar sem kunna að reynast nauðsynlegar til að tryggja að starfshættir standist fyllilega þær kröfur sem gera verður til ábyrgra fyrirtækja.“