Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur

Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur

Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur

Meirihluti þeirra íslensku sakamanna sem sendir voru í afplánun refsidóma til Danmerkur var dæmdur fyrir þjófnað. Um miðja átjándu öld voru mikil harðindi á Íslandi og fólk fór í hrönnum á vergang og neyddist til að sjá sér farborða með því að stela. Tæp 92% þeirra sem fluttir voru til Kaupmannahafnar á árunum 1755-1759 voru dæmdir fyrir þjófnað.

Síðari hluti nítjándu aldar var í rauninni nær samfelldur harðindakafli og var ástandið einna verst eftir móðuharðindin.

Eiríkur Hermannsson sagnfræðingur fjallar í MA-ritgerð sinni um aðstæður almúgafólks og tíðaranda á tímabilinu 1790–1810.

Í þriðja þætti Betrunar á Rás 1 segir Eiríkur frá fjölskyldu sem bjó á Þverá í Fljótshlíð.

Einar Ásmundsson og kona hans Ragnhildur Sigurðardóttir bjuggu ásamt tveimur dætrum sínum að Neðri-Þverá í byrjun nítjándu aldar en þau höfðu misst sex börn á sex árum. Árið 1803 var Einar sakaður um þjófnað eftir að hafa gengið bónleiðar til búðar. Ragnhildur gekk með níunda barn þeirra. Að sögn Eiríks var Einar á leið í verið og aðstæður á heimilinu afar erfiðar á þessum tíma. Það verður kveikjan að því að hann lætur freistast til að skera kind og svo kindur, segir Eiríkur.

Dæmdur til ævilangrar þrælkunar

Einar játar síðar að hafa fyrst skorið kind sem hann fann meðal sinna kinda en var aldrei dæmdur fyrir þjófnaðinn á henni þar sem eigandinn fannst aldrei. Hann var aftur á móti dæmdur fyrir að hafa stolið þremur öðrum. „Hann er sem sagt dæmdur til ævilangrar þrælkunar,“ segir Eiríkur.

Réttarhöldin voru að hans sögn merkileg heimild en þau voru haldin í Kirkjulækjarhelli, þingstað Fljótshlíðinga. Vitnin voru öll úr nágrenninu og dómendur góðbændur í nágrenninu, þar á meðal Vigfús Thorarensen sýslumaður sem var nágranni fjölskyldunnar á Þverá.

Einar sat fyrst inni í fangelsinu við Arnarhól og var síðan sendur til Kaupmannahafnar þar sem hann sat inni í rúmt ár. Þá eignast hann danskan velgjörðarmann sem fær hann lausan úr fangelsi og kemur honum á skip til Íslands. Þessi velgjörðarmaður var fátækrafulltrúi í Kaupmannahöfn og hefur væntanlega kynnst Einari í gegnum starfið því Einar var ærulaus og mátti því ekki vinna fyrir góðborgara líkt og þeir sem höfðu æruna. Hann var einn fárra refsifanga sem áttu afturkomu auðið úr þrælakistum Kaupmannahafnar.

Svo fór að Einar komst heim aftur nokkrum árum eftir að hann hóf afplánun og náði að sameina fjölskylduna að nýju. Aðeins nokkrum árum síðar fórst Einar ásamt allri áhöfn áttærings fyrir utan Hlöðunes á Vatnsleysuströnd.

Afplánaði dóm sem hún fékk ekki

Ragnhildur hafði verið dæmd samsek Einari og í eins árs fangelsi. Refsingunni var frestað þar sem hún var þunguð þegar dómurinn féll. Þegar sonur þeirra Einars fæddist var hann sendur í fóstur og hún send í fangelsið við Arnarhól og afplánaði þar sinn dóm. Drengurinn lést aðeins nokkurra vikna gamall.

Ragnhildur var hins vegar sýknuð í Hæstarétti eftir að hafa afplánað þannig að hún var í fangelsi í ár þrátt fyrir sýknu og fékk engar bætur fyrir. „Þannig að hún sat af sér dóm sem hún fékk ekki,“ segir Eiríkur Hermannsson í þættinum.

Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur hefur rannsakað afdrif íslenskra fanga í dönskum þrælakistum á 18. og 19. öld. Af þeim sakamönnum sem hún hefur fundið lifði sennilega aðeins þriðjungur þeirra af dvölina í Kaupmannahöfn. Þeirra á meðal voru 17 fangar, tólf karlar og fimm konur, sem voru sett á skip 1763 og flutt til Austur-Finnmerkur.

„Þegar þarna í kringum 1760 fara menn að horfa á það að það er fullt af Íslendingum með lífstíðardóm í fangelsum í Kaupmannahöfn. Á sama tíma er verslun í Finnmörk og kaupmenn þar að segja að það vanti fólk til Finnmerkur. Þetta sé bara að verða ófremdarástand. Og þá dettur einhverjum snillingi það í hug: „Heyrðu, þarna er fullt af Íslendingum, þeir eru vanir erfiðu loftslagi og því að veiða.“ Hvort það væri ekki bara ráð að skutla þeim til Finnmerkur? Og þetta er bara ákveðið – að tæma fangelsin af íslenskum föngum í Kaupmannahöfn og flytja þá til Finnmerkur. Þetta reynast vera 17 einstaklingar og það eru fimm konur í þessum hópi. Þær eru ekki sáttar við þetta og skrifa stjórninni bréf um að þær vilji bara alls ekki fara til Finnmerkur og hafi eðlilega viljað komast bara heim til sinna barna og sinnar fjölskyldu. Þannig að þær eru fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur,“ segir Sigríður Hjördís í þriðja þætti Betrunar á Rás 1.

Planið var að þegar fangarnir kæmu af skipsfjöl þarna lengst norður í Barentshafi væru þeir frjálsir einstaklingar. „Í dag eru þá til afkomendur af þessum einstaklingum því það er vitað að einhverjir giftast og eignast fjölskyldur þarna,“ segir Sigríður Hjördís. Hún hefur ekki fundið neinar upplýsingar um konurnar fimm. Það megi velta fyrir sér hvert frelsið sem felst í því að vera fluttar nauðugar á stað sem þær þekkja engan og vita ekkert um.

Drýgði blóðskömm með systur sinni

Einn þeirra festingarþræla sem sendir voru til Finnmerkur 1763 átti svo sannarlega eftir að eignast þar börn og buru. Afkomendur þessa manns, Vigfúsar Þórðarsonar, leituðu til Ættfræðingafélagsins fyrir tæpum tveimur áratugum eftir upplýsingum um forföður sinn.

„Hann forfaðir þinn var dæmdur til dauða fyrir blóðskömm á Íslandi árið 1747, dómnum var breytt til þrælkunar og hann sat sem festingarþræll í Stokkhúsinu í Kaupmannahöfn á annan áratug. Hann var síðar náðaður og sendur frjáls maður til Finnmerkur í Noregi ásamt ellefu öðrum íslenskum föngum.“

Þetta var upphaf svars sem Fredrik Ekeli, ungur norskur piltur, fékk frá félaginu. Ekeli sendi fyrirspurnina fyrir hönd föður síns en þeim feðgum lék forvitni á að vita eitthvað um íslenskan forföður sinn sem átti að vera fæddur um 1717.

Það þarf engan að undra þótt þeim feðgum brygði við svarið, festingarþræll – blóðskömm!

Vigfús var dæmdur til lífláts fyrir að eiga barn með Guðrúnu systur sinni en slíkt varðaði við líflát á þessum tíma samkvæmt Stóradómi.

Engum sögum fer af örlögum Guðrúnar Þórðardóttur en allt bendir til þess að henni hafi verið drekkt í hylnum í Öxará. Hvað varð um barn þeirra systkinanna er ekki vitað.

Vigfús Þórðarson varð frjáls maður við komuna til Finnmerkur, kvæntist ári síðar konu þar og eignaðist með henni þrjú börn. Vigfús lést 1788, rúmlega sjötugur, sem frjáls maður.

Í þættinum er einnig rætt við Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðing og rithöfund, um bækur Björns Th. Björnssonar um íslenska sakamenn.

Frumkvöðull og öðrum hvatning

Bók Björns, Haustskip, er heimildasaga og segir Halldór að Björn hafi verið með þeim fyrstu sem nota það hugtak. „Það sem hann reynir í sjálfu sér að gera er það sem hefur komist í tísku í bókaútgáfu löngu seinna.“

Þar vísar Halldór til enska hugtaksins „narrative nonfiction“, hugtaks sem Íslendingar eiga í basli með, það er „nonfiction“ sem þýðir ekki tilbúningur. Björn notar hugtakið heimildasaga sem vísar í það sem er grundvallandi í bókmenntum og sá grundvöllur liggur hjá lesandanum. „Ef þú lest eitthvað sem er merkt sem skáldsaga þá veistu að höfundurinn má ljúga að þér og er að því. Þetta er tilbúningur. Ef þú lest eitthvað sem er sett fram eins og sagnfræðiverk þá veistu ekki endilega hvort höfundurinn sé alltaf að segja satt en hann er alltaf að reyna að segja satt,“ segir Halldór.

Hann segir að þessi frásagnarfræði sem Björn beitir til að mynda í Haustskipum sé mjög nærri heimildum en í öðrum verkum tekur frásögnin stundum völdin. Þau eiga það sameiginlegt að höfundarnir beita að einhverju leyti skáldsagnarlegri úrvinnslu.

Björn var frumkvöðull á þessu sviði, það er að rannsaka afdrif þessara einstaklinga sem voru sendir í dönsku fangelsin. „Jafnvel þó að á 18. öld ætti svo að heita að það væri búið að afnema pyndingar og slíkt þá voru þetta alveg hræðilegir staðir og dönsku fangelsin voru talin með þeim verstu í Evrópu á þessum tíma.“

Að sögn Halldórs gerir Björn þetta með því að lýsa örlögum einstaklinga og það verði sagan í þessu, jafnvel skáldsöguparturinn í bókunum. Lesandinn viti auðvitað að ef það kemur samtal frá 18. öld þá sé það dæmt til að vera skáldað. „Þessi saga um Íslendinga í fangelsum hefur orðið mörgum öðrum hvatning til að skoða þennan tíma og sjá hvað refsingar voru harðar,“ segir Halldór Guðmundsson í Betrun.

Í þættinum er einnig fjallað um ungan pilt frá Skógum í Eyjafirði sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að falsa peningaseðil. Hann afplánaði í virki konungs í Krónborg en var náðaður nokkrum árum síðar. Hann eignaðist fjölskyldu í Kaupmannahöfn og meðal afkomenda hans eru bræður. Annar varð eins konar konunglegur hirðmálari en hinn eins konar konunglegur fjármálaráðherra. „Við höfum því peninginn og listina í þessari ætt og mikla áhrifamenn í Danmörku,“ segir Halldór.

Már Jónsson, prófessor í sagnfræði, hefur síðustu áratugi sinnt rannsóknum á 17., 18. og fram á 19. öld. Mikið af rannsóknum hans tengjast sakamálum, þar á meðal útburði á börnum (dulsmál), sifjaspellum (blóðskömm) og morðum. Í þriðja þætti Betrunar kemur hann inn á tvö skelfileg morð sem framin voru annars vegar á Hornströndum og hins vegar á Austfjörðum.

Í fjórða þætti Betrunar segir Már meðal annars frá sakamáli tengdu forföður sínum, Magnúsi Benediktssyni, sem var dæmdur fyrir morð norður í landi snemma á átjándu öld. Mál sem þvældist lengi í kerfinu enda sá dæmdi stórættaður og valdamikill.

Hægt er að hlusta á þriðja þáttinn í spilara RÚV og helstu hlaðvarpsveitum. Eins hér að ofan.

#finnmerkur #fluttar #nauðungarflutningi #til


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-16-fluttar-naudungarflutningi-til-finnmerkur-489997

📰 Aðrar fréttir

Líður stórkostlega andlega og líkamlega - Litlu breytingarnar sem hún gerði
📅 16.10.2026 👁️ 1
Líður stórkostlega andlega og líkamlega - Litlu breytingarnar sem hún gerði
Hin breska Alison Cork léttist um tæp 32 kíló á 18 mánuðum án þess að nota þyngdartapssprautur. Hún útskýrir hvernig henni tókst það í kringum sextugt...
Hefur rannsakað mataræði í 30 ár: Prófessor mælir með 80 prósenta reglunni
📅 16.10.2026 👁️ 1
Hefur rannsakað mataræði í 30 ár: Prófessor mælir með 80 prósenta reglunni
Það þarf hvorki að fylgja ströngum mataræðisreglum né neita sér um allan óhollan mat til að bæta heilsuna. Raunar er mun líklegra að fólk haldi sig vi...
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 1
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur - Vísir
Þetta er ákveðið ástand sem virðist hafa komið upp reglulega frá því Trump varð aftur forseti. Hann hefur flakkað á milli þess að vera gagnrýninn á Rú...
Fiskikóngurinn æfur yfir ákvörðun Jóns Gnarr – „Meira helvítis ruglið þarna“
📅 16.10.2026 👁️ 1
Fiskikóngurinn æfur yfir ákvörðun Jóns Gnarr – „Meira helvítis ruglið þarna“
Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, er allt annað en sáttur við ákvörðun Jóns Gnarr um að segja skilið við Viðreisn en sitja á...
Landsréttur klofnaði þegar fimm ára fangelsi var breytt í sýknudóm
📅 16.10.2026 👁️ 1
Landsréttur klofnaði þegar fimm ára fangelsi var breytt í sýknudóm
Karlmaður á fertugsaldri var í gær sýknaður af ákæru um nauðgun. Landsréttur sagði ekki sannað að hann hefði brotið af sér.Maðurinn var sakfelldur og ...
Ung­börn á­fram bólu­sett gegn RS-veiru - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Ung­börn á­fram bólu­sett gegn RS-veiru - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90% foreldra þá...
Data breaches and expats: what Canary Islands residents should check
📅 16.10.2026 👁️ 1
Data breaches and expats: what Canary Islands residents should check
Moving to the Canary Islands usually means opening a Spanish bank account, registering on the padrón, getting an NIE, signing up with a local phone pr...
Á­rásar­maðurinn sex­tán ára - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Á­rásar­maðurinn sex­tán ára - Vísir
Árásin átti sér stað í gær og greinir BBC frá. Árásarmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur en hann braust inn í Silver Rail-grunnskólann með því að s...
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 1
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu - Vísir
Í frétt Reuters segir að tveir bandarískir embættismenn og einn vestrænn hafi fengið upplýsingar um málið og segir að yfirmenn í bandaríska varnarmála...
Tals­verð rigning næstu daga - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Tals­verð rigning næstu daga - Vísir
Þetta segja spár Veðurstofunnar. Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Talsverð rigning á morgun. S...
Appeal to find missing Irish holidaymaker in Fuerteventura
📅 16.10.2026 👁️ 2
Appeal to find missing Irish holidaymaker in Fuerteventura
An appeal has been shared to help find a holidaymaker who went missing during a solo trip to Fuerteventura. Gary Johnston, 52, flew from Dublin to the...
„Tárin streymdu niður vangann á mér“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
„Tárin streymdu niður vangann á mér“ - Vísir
Þetta skrifaði hin þrettán ára Matthildur Yrsa Sigurðardóttir í nýútgefinni bók sem ber titilinn Síðasti dagurinn. Hún tók upp á því aðeins ellefu ára...
„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 1
„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“ - Vísir
Kjartan Logi hefur gert það gott með grínsketsum sínum á samfélagsmiðlum síðustu tvö árin og fengið í framhaldinu hlutverk í sjónvarpsþáttum og auglýs...
Stærsti hluthafi Ölgerðarinnar um rannsóknina: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt“
📅 16.10.2026 👁️ 2
Stærsti hluthafi Ölgerðarinnar um rannsóknina: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt“
Annar af stærstu hluthöfum Ölgerðarinnar, Bogi Þór Siguroddsson, segir að hann taki umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um fyrirtækið alvarlega. ...
Nína Richter skrifar: Gervigreindarloddarar
📅 16.10.2026 👁️ 2
Nína Richter skrifar: Gervigreindarloddarar
Mynd Ég var að borða fisk með tengdaforeldrum mínum þ
Rólegt í dag en byrjar að rigna og hvessa á morgun
📅 16.10.2026 👁️ 2
Rólegt í dag en byrjar að rigna og hvessa á morgun
Landsmenn mega búast við nokkuð dæmigerðu haustveðri í dag, nokkrum vindi og lítilsháttar skúrum. Á landinu austanverðu er þó útlit fyrir að það verði...
Raddir fólks með þroskahömlun þurfa að heyrast hærra
📅 16.10.2026 👁️ 2
Raddir fólks með þroskahömlun þurfa að heyrast hærra
Mikilvægt er að raddir fólks með þroskahömlun gleymist ekki í umræðunni segir formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Fólk með þroskahömlun get...
Grænland hyggst banna námugröft á djúpsævi
📅 16.10.2026 👁️ 2
Grænland hyggst banna námugröft á djúpsævi
Grænlandsþing hefur einróma samþykkt þingsályktunartillögu um að grænlenska ríkisstjórnin skuli útfæra bann við námugreftri á djúpsævi. Þetta kemur fr...
MPs reject proposal to protect residents living in tourist complexes
📅 16.10.2026 👁️ 2
MPs reject proposal to protect residents living in tourist complexes
Residents living in tourist or holiday complexes across the Canary Islands remain without the legal changes proposed to protect their homes after the ...
Sögu­legur dómur fyrir náms­menn í Hæsta­rétti - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Sögu­legur dómur fyrir náms­menn í Hæsta­rétti - Vísir
Hæstiréttur sneri við dómi Landsréttar í gær en málið má rekja til þess þegar kona slasaðist í umferðarslysi árið 2019. Ágreiningur hennar við Vörð sn...
Börnin sem létust í skotárásinni voru á aldrinum 5–11 ára
📅 16.10.2026 👁️ 2
Börnin sem létust í skotárásinni voru á aldrinum 5–11 ára
Þrjú börn og kennari eru látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-ríki í Bandaríkjunum í gær.Breska ríkisútvarpið greinir frá því að árásarmaðurinn ...
Breyta kennsluaðferðum vegna gervigreindar
📅 16.10.2026 👁️ 2
Breyta kennsluaðferðum vegna gervigreindar
Sögukennarar í Kvennaskólanum og Verzlunarskóla Íslands hafa breytt verkefnavinnu nemenda vegna áhrifa gervigreindar. Nemendur vinna nú verkefni í tím...
Hand­tekinn fyrir hótanir og vopna­laga­brot - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Hand­tekinn fyrir hótanir og vopna­laga­brot - Vísir
Í dagbók lögreglu er greint frá atvikum sem áttu sér stað frá klukkan 17:00 í gærdag og þar til klukkan 5:00. Þar er greint frá því að í umdæmi lögreg...
FRIDAY WEATHER: Warm across the Canary Islands with temperatures reaching 30°C
📅 16.10.2026 👁️ 2
FRIDAY WEATHER: Warm across the Canary Islands with temperatures reaching 30°C
The Canary Islands will enjoy another warm day this Friday, 16th October, with temperatures still above average for the time of year reaching around 3...
Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof
📅 16.10.2026 👁️ 4
Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof
Maðurinn sem lést þegar hann klifraði ofan í gryfju tígrisdýrs í dýragarði í Yorkshire á Englandi hafði lengi glímt við geðræn vandamál.Breska ríkisút...
Met needs to move away from criminalising sex workers, officers say after Levy failings
📅 16.10.2026 👁️ 4
Met needs to move away from criminalising sex workers, officers say after Levy failings
The force is piloting a two-officer female team in north London to engage with street sex workers, in a bid to improve trust.
Watch: Will disenchanted Iowa Republicans reject Trump in the midterms?
📅 16.10.2026 👁️ 4
Watch: Will disenchanted Iowa Republicans reject Trump in the midterms?
The BBC's Sarah Smith travelled across the state ahead of the midterms, as the president faces political headwinds.
65 handteknir í háværum mótmælum námsmanna í Albaníu
📅 16.10.2026 👁️ 4
65 handteknir í háværum mótmælum námsmanna í Albaníu
Róstusöm mótmæli námsmanna í Albaníu hafa dreift úr sér frá höfuðborginni, Tirana, til smærri borga, en þeir hafa nú í þrjá daga krafist afsagnar fors...
Trump segir Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín
📅 16.10.2026 👁️ 4
Trump segir Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar árásir Úkraínu á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi „hneisu“. Þetta sagði forsetinn fyrir skemmstu í viðtali hjá ...
Fimm Norðmenn handteknir fyrir að svíkja fé af NATO
📅 16.10.2026 👁️ 4
Fimm Norðmenn handteknir fyrir að svíkja fé af NATO
Fimm menn voru handteknir nærri Björgvin í Noregi á miðvikudaginn og hafa þeir verið ákærðir fyrir fjársvik gagnvart Atlantshafsbandalaginu.Mennirnir ...
Stjórnmálamaður dæmdur fyrir að misnota börn
📅 16.10.2026 👁️ 4
Stjórnmálamaður dæmdur fyrir að misnota börn
Norðurírski stjórnmálamaðurinn Jeffrey Donaldson hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á börnum, þar af eina nauðgun. Þá ...
Stjórnmálamaður dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á börnum
📅 16.10.2026 👁️ 2
Stjórnmálamaður dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á börnum
Norðurírski stjórnmálamaðurinn Jeffrey Donaldson hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir að brjóta kynferðislega á börnum, þar af var hann sakfelld...
Three children and teacher killed by 16-year-old at Oregon primary school
📅 16.10.2026 👁️ 4
Three children and teacher killed by 16-year-old at Oregon primary school
The suspect was shot dead by a local community member who followed him into the school, said police.
Children and teacher killed in Oregon primary school shooting
📅 16.10.2026 👁️ 4
Children and teacher killed in Oregon primary school shooting
The suspect was shot dead by a community member who followed him into the Oregon school, police said.
Same-day test helps doctors detect hidden infections in critically ill children
📅 16.10.2026 👁️ 4
Same-day test helps doctors detect hidden infections in critically ill children
Metagenomics offers a new way of detecting infections in intensive care patients.
Gripinn á flugvelli með 90 skriðdýr í farteskinu
📅 16.10.2026 👁️ 4
Gripinn á flugvelli með 90 skriðdýr í farteskinu
Maður var í gær gripinn á flugvellinum í Bonn í Þýskalandi með meira en 90 eðlur og eitursnáka meðferðis.Maðurinn er sagður vera 45 ára mexíkóskur rík...
Nálgist neyðar­á­stand - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Nálgist neyðar­á­stand - Vísir
„Við höfum í raun og veru haft töluverðar áhyggjur af þessu máli núna um nokkurt skeið og við töldum okkur í raun og veru vera komin í þá stöðu að það...
Reform faces questions over candidate vetting after undercover filming
📅 15.10.2026 👁️ 4
Reform faces questions over candidate vetting after undercover filming
Reform UK says the party has "improved and prioritised its vetting procedures".
CJP, Abhijeet Dipke: India's 'cockroach' protesters set to return despite police crackdown
📅 15.10.2026 👁️ 5
CJP, Abhijeet Dipke: India's 'cockroach' protesters set to return despite police crackdown
The youth-led movement plans a fresh Delhi protest after mass detentions last week and the jailing of two leaders.
Porn showing choking or incest to be banned from early November, government says
📅 15.10.2026 👁️ 7
Porn showing choking or incest to be banned from early November, government says
The move follows a review into pornography regulation in 2025 by Conservative peer Baroness Gabby Bertin
Sparks fly at the Celebrity Traitors round table and a 'terrifying' death march
📅 15.10.2026 👁️ 4
Sparks fly at the Celebrity Traitors round table and a 'terrifying' death march
The celebrities turn on each other at the round table, and have to beat the death marchers for their mission.
Ný rannsókn varpar ljósi á hættuna við að borða seint á kvöldin
📅 15.10.2026 👁️ 4
Ný rannsókn varpar ljósi á hættuna við að borða seint á kvöldin
Það getur verið freistandi að fá sér eitthvað gott í gogginn áður en haldið er til náða. Ný rannsókn bendir hins vegar til þess að þessi hversdagslegi...
Tuga milljóna kröfu brottrekins flugmanns hafnað - Rekinn vegna drykkju og hegðunarvandamála - Umdeild ADHD-greining dugði ekki
📅 15.10.2026 👁️ 4
Tuga milljóna kröfu brottrekins flugmanns hafnað - Rekinn vegna drykkju og hegðunarvandamála - Umdeild ADHD-greining dugði ekki
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu manns, sem vikið var úr starfi sínu sem flugmaður, um 78,9 milljóna króna bætur...
Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon - Vísir
CBS News greinir frá þessu. Yfirvöldum barst tilkynning um að skoti hefði verið hleypt af inn í bíl fyrir utan grunnskólann klukkan 12:59 að staðartím...
Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjöl­farið - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjöl­farið - Vísir
Þetta segir Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson í pistli sem birtist á Vísi í morgun. Þar opnar hann sig um eigin missi til að vekja athygli á tveimur við...
Þrjú börn látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon
📅 15.10.2026 👁️ 4
Þrjú börn látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon
Fjórir er látnir, þar af þrjú börn, eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-fylki í Bandaríkjunum í kvöld. Að minnsta kosti tveir voru fluttir alvarlega ...
Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir
Annar ársfjórðungur í rekstri Haga hf. var umfram væntingar og afkomuspá fyrir rekstrarárið 2026-2027 hefur verið hækkuð um 800 milljónir króna. Þetta...
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
📅 15.10.2026 👁️ 4
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Flutti maðurinn efni til landsins sem er líklega ekki mikið þek...
Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir
Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegginn og þvert yfir íb...
Lentu aftur í ó­förum - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Lentu aftur í ó­förum - Vísir
Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegg og þvert yfir íbúði...