Þrjú börn og kennari eru látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-ríki í Bandaríkjunum í gær.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að árásarmaðurinn hafi verið 16 ára gamall piltur en nafns hans hefur ekki verið getið. Hann braut sér leið inn í Silver Rail-grunnskólann í bænum Bend með því að skjóta á læstar dyr.
Börnin þrjú sem létust voru 5, 8 og 11 ára gömul. Annað 7 ára gamalt barn og 54 ára kennari voru flutt á spítala og er ástand þeirra sagt alvarlegt. Um 450 börn sækja Silver Rail-skólann.
Skotinn til bana af óbreyttum borgara
Lögregla fékk tilkynningu um skotárásina klukkan 13.59 að staðartíma, eða klukkan 19.59 að íslenskum tíma. Tilkynningin barst frá sjónarvotti sem sagði að óþekktur maður hefði skotið á bíl sinn.
Árásarmaðurinn var að endingu skotinn til bana af óbreyttum borgara sem elti hann inn í skólabygginguna, hefur BBC eftir lögreglustjóranum í Bend, Mike Krantz. Þremur mínútum síðar var lögregla komin á vettvang.
Krantz segir að ekki sé enn þá komið á hreint hvort árásarmaðurinn hafi tengst skólanum með einhverjum hætti.
Skólum í Bend var lokað í kjölfar árásarinnar.