Undirbúningur í Úkraínu fyrir það sem lítur út fyrir að vera erfiður vetur, er ofarlega á dagskrá leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í dag. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu kom á fund leiðtoganna nú á áttunda tímanum og ræddi stuttlega við fjölmiðla á undan.
Zelensky segir engin merki um friðarvilja Rússa og þess vegna þurfi að undirbúa sig fyrir veturinn, segir hann; ekki aðeins hvað varðar orkumál, heldur einnig loftvarnir og fjárhagslegan stuðning.
Samskipti stjórnvalda í Kyiv og Washington verða að líkindum einnig rædd á leiðtogafundinum í Brussel, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt árásir Úkraínumanna á olíuhreinsistöðvar í Rússlandi, í kjölfar samnings sem Trump gerði um síðustu helgi við Pútín Rússlandsforseta um aukið framboð á olíu og dísel.