Fjöldi dauðra og veikra fugla hefur fundist víða um land síðustu vikurnar. Ekki er vitað hversu mikil útbreiðslan er.
Búið er að greina fuglainflúensu í villtum fuglum á Norðurlandi, Suðvesturlandi og Suðausturlandi. Sýni hafa verið tekin úr dauðum og veikum fuglum úr öðrum landshlutum en beðið er niðurstöðu úr greiningum úr þeim.
Skæð afbrigði fuglainflúensu greindust í fyrrahaust og aftur í vor. Nú greinist fuglainflúensa á ný. Afbrigðin sem hafa greinst eru H5N5 og H5N1.
Hettumáfur, skúmur, tveir svartbakar og sílamáfur sem fundust á Blönduósi, Skagaströnd og við Sauðárkrók í september greindust með fuglainflúensu. Það voru fyrstu jákvæðu sýnin í haust. Síðan hafa fleiri ábendingar borist og búið er að greina smit í fuglum á Húsavík og við Jökulsárón. Átta máfar sem fundust dauðir í Sandgerði voru með H5N5.