Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti - Vísir

Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti - Vísir

Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti - Vísir

Atvikin áttu sér stað að morgni 10. apríl 2023 á heimili mannsins. Samkvæmt ákæru beitti hann konuna ofbeldi og ólögmætri nauðung og hafði við hana önnur kynferðismök en samræði án samþykkis hennar.

Í ákæru var því meðal annars lýst að maðurinn hefði slegið konuna í andlitið, tekið hana hálstaki, haldið kodda yfir andliti hennar þannig að hún ætti erfitt með að anda og þrýst hné sínu á efri hluta bringu hennar. Þá var honum gefið að sök að hafa stungið fingrum inn í leggöng hennar og haft sáðlát yfir andlit hennar.

Konan hlaut samkvæmt ákæru meðal annars rifbeinsbrot, yfirborðsáverka á höfði, eymsli í kjálka, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, heyrnartap og rifbrot.

Héraðsdómur taldi sannað að maðurinn hefði gerst sekur um brotið, að því undanskildu að ekki þótti sannað að hann hefði slegið konuna víðs vegar um líkamann. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi og til að greiða henni 2,5 milljónir króna í miskabætur. Hann áfrýjaði niðurstöðunni til Landsréttar.

Deilt um samþykki fyrir harkalegu kynlífi

Fyrir Landsrétti neitaði maðurinn áfram sök og hélt því fram að konan hefði samþykkt að stunda með honum harkalegt kynlíf þar sem meðal annars mætti slá hana og taka hana hálstaki. Hann sagði þau hafa rætt um slíkt kynlíf fyrir fram og sammælst um öryggisorð sem hún gæti notað til að stöðva hann eða setja honum mörk.

Í dómi Landsréttar er vísað til samskipta þeirra á Instagram skömmu áður en konan kom heim til hans. Þar hafði maðurinn greint henni frá því að hann hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi. Hann spurði meðal annars hvort hún vildi láta slá sig og kyrkja og svaraði konan því játandi.

Landsréttur taldi að af samskiptunum mætti ráða að konan hefði gert sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á harkalegu kynlífi. Hún hefði gefið skýrt til kynna að hún væri tilbúin að prófa það með honum.

Fyrir dómi sagði maðurinn að þau hefðu einnig rætt um mörk þegar konan kom heim til hans. Hann hefði spurt hana hvort eitthvað væri sem hann mætti alls ekki gera og hún svarað því til að hún hefði engin sérstök mörk. Þá hefðu þau sammælst um öryggisorð.

Ekki sýnt fram á skýr mörk

Konan lýsti samskiptunum með öðrum hætti. Hún sagði að þau hefðu lítið rætt saman áður en kynmökin hófust og að maðurinn hefði ekki kannað hvort henni væri í lagi að halda áfram þegar á reyndi.

Meirihluti Landsréttar taldi ekki sannað að maðurinn hefði aðeins upplýst konuna um öryggisorðið þegar hún kom heim til hans og síðan hafið ofbeldið án frekari umræðu. Framburður mannsins um að þau hefðu rætt mörk og öryggisorð fyrir fram væri stöðugur og fengi ákveðinn stuðning í framburði konunnar hjá lögreglu.

Var það niðurstaða meirihlutans að leggja yrði til grundvallar að konan hefði samþykkt að maðurinn mætti beita hana hörku í kynlífi, meðal annars með því að slá hana og taka hana kverkataki. Ekki hefði verið sýnt fram á að hún hefði sett honum skýr mörk um hvaða háttsemi væri óheimil.

Sagðist hafa frosið

Maðurinn viðurkenndi að hafa beitt konuna ofbeldi sem hluta af kynlífinu, en sagði að hún hefði ekki gefið til kynna að hann gengi of langt, að öðru leyti en þegar hún notaði öryggisorðið. Þá hefði hann brugðist við og losað takið.

Konan sagði hins vegar að hún hefði notað öryggisorðið þegar henni fannst hún vera að kafna. Maðurinn hefði slakað lítillega á takinu en síðan haldið áfram. Að öðru leyti hefði hún frosið og ekki getað brugðist við.

„Ég fraus, ég hafði ekki tækifæri til að mótmæla eða segja nokkurn skapaðan hlut, það var aldrei tékkað á mér, athugað hvort ég væri í lagi eða hvort það mætti halda áfram,“ sagði konan fyrir dómi.

Ekki ljóst að konan hefði viljað hætta

Meirihluti Landsréttar taldi að framburður beggja væri skýr og stöðugur um að konan hefði aðeins einu sinni notað öryggisorðið. Hún hefði þá gefið til kynna að hún ætti erfitt með að ná andanum og maðurinn losað takið.

Dómurinn tók fram að samþykki fyrir kynferðislegum athöfnum gæti verið afturkallað og að það yrði að koma fram með orðum eða öðrum hætti þannig að hinn þátttakandinn yrði þess áskynja. Þá gæti reynt á refsiábyrgð ef þátttakanda væri gert illmögulegt að tjá vilja sinn, til dæmis við harkalegar kynlífsathafnir, og hinn aðilinn væri meðvitaður um þá aðstöðu en héldi samt áfram.

Í þessu máli taldi meirihlutinn hins vegar ekki sannað að maðurinn hefði haft tilefni til að átta sig á því að konan vildi hætta eða að henni væri fyrirmunað að koma breyttri viljaafstöðu sinni á framfæri. Ekki væri heldur sýnt fram á að hann hefði af ásetningi gengið lengra en samþykki hennar náði til.

Gögn um líkamlegt tjón dygðu ekki til

Þótt gögn lægju fyrir um líkamlegt og andlegt tjón konunnar nægðu þau ekki ein og sér til að sýna fram á að maðurinn hefði af ásetningi valdið henni meiðslum umfram það sem hann hafði réttmæta ástæðu til að ætla að hún samþykkti.

Landsréttur lagði áherslu á að ásetningur væri skilyrði refsiábyrgðar vegna nauðgunar samkvæmt ákvæðinu sem ákært var fyrir. Gáleysi eitt nægði ekki til sakfellingar. Sönnunarbyrðin hvíldi á ákæruvaldinu og sekt yrði að vera sönnuð þannig að hún yrði ekki véfengd með skynsamlegum rökum.

Með vísan til þess taldi meirihluti dómsins ekki nægilega sannað að maðurinn hefði af ásetningi gerst sekur um nauðgun. Hann var því sýknaður.

Taldi ofbeldið langt umfram samþykki

Ingibjörg Þorsteinsdóttir, landsréttardómari og eina konan í dómaratríóinu, skilaði sératkvæði og var ósammála niðurstöðu meirihlutans, Ásmundar Helgasonar og Jóns Höskuldssonar. Hún taldi að staðfesta ætti dóm héraðsdóms um sakfellingu mannsins og greiðslu miskabóta.

Í sératkvæðinu segir að þótt konan hafi samþykkt harkalegt kynlíf hafi ekki verið sýnt fram á að samþykki hennar næði til þeirrar miklu hörku og þess ofbeldis sem hún lýsti. Samþykki fyrir því að vera slegin í andlitið og tekin kyrkingartaki jafngilti ekki samþykki fyrir hvers kyns ofbeldi.

Ingibjörg taldi framburð konunnar trúverðugan og í meginatriðum stöðugan. Frásögn hennar fengi jafnframt stuðning í læknisfræðilegum gögnum, þar á meðal niðurstöðum skoðunar á neyðarmóttöku og skráðum áverkum.

Taldi ofbeldi umfram samþykki sannað

Hún taldi einnig að framburður mannsins um samtal þeirra fyrir kynmökin væri óljós og að hann hefði ítrekað vikið sér undan því að svara beint spurningum um atvik málsins.

Að mati hennar var sannað að maðurinn hefði beitt konuna mun meira ofbeldi en hún hafði samþykkt. Þegar hún notaði öryggisorðið hefði hún gefið skýrt til kynna að hún vildi stöðva kynmökin en maðurinn hefði haldið áfram. Sú staðreynd að hún hefði ekki getað mótmælt oftar yrði ekki túlkuð henni í óhag við þessar aðstæður. Þá væri framburður mannsins ótrúverðugur að hann hefði í reynd stoppað kynmökin og fengið samþykki fyrir því að halda áfram.

Ingibjörg taldi því sannað að maðurinn hefði af ásetningi haft önnur kynferðismök við konuna án samþykkis hennar og að staðfesta bæri fimm ára fangelsisdóminn úr héraði.

Konan hafði krafist 3,5 milljóna króna í miskabætur. Landsréttur vísaði bótakröfu hennar frá dómi í kjölfar sýknunnar. Kostnaður vegna málsins í héraði og fyrir Landsrétti greiðist úr ríkissjóði.

#ekki #gróft #kynlíf #nauðgun #samkvæmt


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262949238d/groft-kynlif-en-ekki-naudgun-samkvaemt-klofnum-landsretti

📰 Aðrar fréttir

Svarar gagnrýnisröddum og segist alls ekki of gömul til að vera ófrísk
📅 16.10.2026 👁️ 0
Svarar gagnrýnisröddum og segist alls ekki of gömul til að vera ófrísk
Leikkonan Hilary Swank ræddi um tvöfalda staðla í samfélaginu og neikvæð viðbrögð í kjölfar þess að hún tilkynnti að hún væri ólétt, 52 ára að aldri.„...
Hjónadjöflar
📅 16.10.2026 👁️ 0
Hjónadjöflar
Hjónadjöflar Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Djöflar eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Hvenær er sam­bandi lokið? Hvenær er ástin ...
Slasaði sig á dularfullri saumnál í bílaleigubílnum en fær ekki endurgreitt
📅 16.10.2026 👁️ 1
Slasaði sig á dularfullri saumnál í bílaleigubílnum en fær ekki endurgreitt
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu ferðamanns um endurgreiðslu á leigu fyrir bílaleigubíl og greiðslu skaðabóta vegna meiðsla sem han...
Losum um hnútinn: 163 aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
📅 16.10.2026 👁️ 1
Losum um hnútinn: 163 aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
Jafnvægisvogin veitti á miðvikudag 163 fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum viðurkenningu fyrir kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum. Það er 27,3% f...
Skólahald í skjóli loftvarnaflauta
📅 16.10.2026 👁️ 0
Skólahald í skjóli loftvarnaflauta
Skólahald í skjóli loftvarnaflauta Skóla­hald í Grinda­vík hefur gengið vel og óslitið frá því það hófst í lok ágúst. Loft­varn­arflautur eru próf­aða...
Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smá­at­riði - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 0
Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smá­at­riði - Vísir
„Hafnarfjörður er yndislegur bær og sérstaklega góður kostur fyrir fjölskyldufólk. Hér eru öflugir skólar, fjölbreytt menningarlíf, góðir veitingastað...
Trump vill semja við Rússland og Kína um kjarnorkuafvopnun – möguleg tímamót í samskiptum stórveldanna
📅 16.10.2026 👁️ 0
Trump vill semja við Rússland og Kína um kjarnorkuafvopnun – möguleg tímamót í samskiptum stórveldanna
Trump vill semja við Rússland og Kína um kjarnorkuafvopnun – möguleg tímamót í samskiptum stórveldanna Fréttin16. október 2026ErlentLeave a Comment Sa...
Tvær mótsagnir Þorgerðar valda vanhæfi
📅 16.10.2026 👁️ 0
Tvær mótsagnir Þorgerðar valda vanhæfi
Tvær mótsagnir Þorgerðar valda vanhæfi Fréttin16. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín ut...
Öryggi barna gleymist í heimi þar sem hugmyndafræði ræður ríkjum
📅 16.10.2026 👁️ 0
Öryggi barna gleymist í heimi þar sem hugmyndafræði ræður ríkjum
Öryggi barna gleymist í heimi þar sem hugmyndafræði ræður ríkjum Fréttin16. október 2026Aðsend grein, Helga Dögg Sverrisdóttir, InnlentLeave a Comment...
Essex dad sentenced after son died in Cyprus hotel fall
📅 16.10.2026 👁️ 0
Essex dad sentenced after son died in Cyprus hotel fall
Joshua Foster will have to pay 3,000 euro (£2,500), a judge in Paphos rules.
Oregon school shooting: 'We are heartbroken and horrified'
📅 16.10.2026 👁️ 0
Oregon school shooting: 'We are heartbroken and horrified'
A 16-year-old killed three children and a teacher at a primary school in Oregon before he was killed by a bystander, police say.
Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump
📅 16.10.2026 👁️ 0
Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump
Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump „Nú er tím­inn til að auka stuðn­ing okkar og herða þrýst­ing­inn“ segir António Costa...
Police officer who raped two women jailed for 12 years
📅 16.10.2026 👁️ 0
Police officer who raped two women jailed for 12 years
Campbell Petrie was found guilty of physical and sexual abuse towards the women between 2006 and 2023.
Hvetur Veður­stofuna til að brjóta odd af of­læti sínu - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 0
Hvetur Veður­stofuna til að brjóta odd af of­læti sínu - Vísir
Þetta segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, í færslu á Facebook í kjölfar lægðarinnar sem gekk yfir landið á miðvikudaginn. Lægð...
Facebook og Instagram rukka fyrirtæki fyrir fleiri en 2 hlekki
📅 16.10.2026 👁️ 2
Facebook og Instagram rukka fyrirtæki fyrir fleiri en 2 hlekki
Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, er byrjað að rukka fyrirtæki sem halda úti síðum fyrir að geta sett hlekk...
Talsverðar breytingar fram undan hjá þeim sem ætla að kaupa rafbíl – Aðeins tvær vikur til stefnu
📅 16.10.2026 👁️ 1
Talsverðar breytingar fram undan hjá þeim sem ætla að kaupa rafbíl – Aðeins tvær vikur til stefnu
Talsverðar breytingar verða á styrkjum til rafbílakaupa frá og með 1. nóvember næstkomandi. Styrkir vegna kaupa á nýjum rafbílum lækka um 100 þúsund k...
Zelensky rallies EU support as Trump says Ukraine leader 'more difficult to deal with than Putin'
📅 16.10.2026 👁️ 1
Zelensky rallies EU support as Trump says Ukraine leader 'more difficult to deal with than Putin'
The US president launches a new wave of blistering criticism at Volodymyr Zelensky ahead of a meeting of EU leaders in Brussels.
Veikir og dauðir fuglar voru með fuglainflúensu
📅 16.10.2026 👁️ 2
Veikir og dauðir fuglar voru með fuglainflúensu
Fjöldi dauðra og veikra fugla hefur fundist víða um land síðustu vikurnar. Ekki er vitað hversu mikil útbreiðslan er.Búið er að greina fuglainflúensu ...
Flugskeyti sem send voru til Úkraínu seld á „opnum markaði“ – Trump
📅 16.10.2026 👁️ 2
Flugskeyti sem send voru til Úkraínu seld á „opnum markaði“ – Trump
Flugskeyti sem send voru til Úkraínu seld á „opnum markaði“ – Trump Fréttin16. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Donald Trump, ...
Nýr forseti ASÍ kosinn í dag
📅 16.10.2026 👁️ 2
Nýr forseti ASÍ kosinn í dag
47. þingi Alþýðusambands Íslands lýkur í dag.Þar verður nýr forseti kjörinn til tveggja ára. Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, gaf ekki k...
Doctor regrets not going to police earlier about Lucy Letby
📅 16.10.2026 👁️ 2
Doctor regrets not going to police earlier about Lucy Letby
Dr Stephen Brearey was the lead neonatal consultant at the hospital where the nurse worked.
Ræða undirbúning fyrir erfiðan vetur í Úkraínu
📅 16.10.2026 👁️ 2
Ræða undirbúning fyrir erfiðan vetur í Úkraínu
Undirbúningur í Úkraínu fyrir það sem lítur út fyrir að vera erfiður vetur, er ofarlega á dagskrá leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í dag. Vo...
Líður stórkostlega andlega og líkamlega - Litlu breytingarnar sem hún gerði
📅 16.10.2026 👁️ 2
Líður stórkostlega andlega og líkamlega - Litlu breytingarnar sem hún gerði
Hin breska Alison Cork léttist um tæp 32 kíló á 18 mánuðum án þess að nota þyngdartapssprautur. Hún útskýrir hvernig henni tókst það í kringum sextugt...
Hefur rannsakað mataræði í 30 ár: Prófessor mælir með 80 prósenta reglunni
📅 16.10.2026 👁️ 2
Hefur rannsakað mataræði í 30 ár: Prófessor mælir með 80 prósenta reglunni
Það þarf hvorki að fylgja ströngum mataræðisreglum né neita sér um allan óhollan mat til að bæta heilsuna. Raunar er mun líklegra að fólk haldi sig vi...
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur - Vísir
Þetta er ákveðið ástand sem virðist hafa komið upp reglulega frá því Trump varð aftur forseti. Hann hefur flakkað á milli þess að vera gagnrýninn á Rú...
Fiskikóngurinn æfur yfir ákvörðun Jóns Gnarr – „Meira helvítis ruglið þarna“
📅 16.10.2026 👁️ 2
Fiskikóngurinn æfur yfir ákvörðun Jóns Gnarr – „Meira helvítis ruglið þarna“
Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, er allt annað en sáttur við ákvörðun Jóns Gnarr um að segja skilið við Viðreisn en sitja á...
Landsréttur klofnaði þegar fimm ára fangelsi var breytt í sýknudóm
📅 16.10.2026 👁️ 3
Landsréttur klofnaði þegar fimm ára fangelsi var breytt í sýknudóm
Karlmaður á fertugsaldri var í gær sýknaður af ákæru um nauðgun. Landsréttur sagði ekki sannað að hann hefði brotið af sér.Maðurinn var sakfelldur og ...
Ung­börn á­fram bólu­sett gegn RS-veiru - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Ung­börn á­fram bólu­sett gegn RS-veiru - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90% foreldra þá...
Data breaches and expats: what Canary Islands residents should check
📅 16.10.2026 👁️ 2
Data breaches and expats: what Canary Islands residents should check
Moving to the Canary Islands usually means opening a Spanish bank account, registering on the padrón, getting an NIE, signing up with a local phone pr...
Á­rásar­maðurinn sex­tán ára - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Á­rásar­maðurinn sex­tán ára - Vísir
Árásin átti sér stað í gær og greinir BBC frá. Árásarmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur en hann braust inn í Silver Rail-grunnskólann með því að s...
Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur
📅 16.10.2026 👁️ 2
Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur
Meirihluti þeirra íslensku sakamanna sem sendir voru í afplánun refsidóma til Danmerkur var dæmdur fyrir þjófnað. Um miðja átjándu öld voru mikil harð...
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu - Vísir
Í frétt Reuters segir að tveir bandarískir embættismenn og einn vestrænn hafi fengið upplýsingar um málið og segir að yfirmenn í bandaríska varnarmála...
Tals­verð rigning næstu daga - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Tals­verð rigning næstu daga - Vísir
Þetta segja spár Veðurstofunnar. Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Talsverð rigning á morgun. S...
Appeal to find missing Irish holidaymaker in Fuerteventura
📅 16.10.2026 👁️ 3
Appeal to find missing Irish holidaymaker in Fuerteventura
An appeal has been shared to help find a holidaymaker who went missing during a solo trip to Fuerteventura. Gary Johnston, 52, flew from Dublin to the...
„Tárin streymdu niður vangann á mér“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
„Tárin streymdu niður vangann á mér“ - Vísir
Þetta skrifaði hin þrettán ára Matthildur Yrsa Sigurðardóttir í nýútgefinni bók sem ber titilinn Síðasti dagurinn. Hún tók upp á því aðeins ellefu ára...
„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“ - Vísir
Kjartan Logi hefur gert það gott með grínsketsum sínum á samfélagsmiðlum síðustu tvö árin og fengið í framhaldinu hlutverk í sjónvarpsþáttum og auglýs...
Stærsti hluthafi Ölgerðarinnar um rannsóknina: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt“
📅 16.10.2026 👁️ 3
Stærsti hluthafi Ölgerðarinnar um rannsóknina: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt“
Annar af stærstu hluthöfum Ölgerðarinnar, Bogi Þór Siguroddsson, segir að hann taki umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um fyrirtækið alvarlega. ...
Nína Richter skrifar: Gervigreindarloddarar
📅 16.10.2026 👁️ 3
Nína Richter skrifar: Gervigreindarloddarar
Mynd Ég var að borða fisk með tengdaforeldrum mínum þ
Rólegt í dag en byrjar að rigna og hvessa á morgun
📅 16.10.2026 👁️ 3
Rólegt í dag en byrjar að rigna og hvessa á morgun
Landsmenn mega búast við nokkuð dæmigerðu haustveðri í dag, nokkrum vindi og lítilsháttar skúrum. Á landinu austanverðu er þó útlit fyrir að það verði...
Raddir fólks með þroskahömlun þurfa að heyrast hærra
📅 16.10.2026 👁️ 3
Raddir fólks með þroskahömlun þurfa að heyrast hærra
Mikilvægt er að raddir fólks með þroskahömlun gleymist ekki í umræðunni segir formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Fólk með þroskahömlun get...
Grænland hyggst banna námugröft á djúpsævi
📅 16.10.2026 👁️ 3
Grænland hyggst banna námugröft á djúpsævi
Grænlandsþing hefur einróma samþykkt þingsályktunartillögu um að grænlenska ríkisstjórnin skuli útfæra bann við námugreftri á djúpsævi. Þetta kemur fr...
MPs reject proposal to protect residents living in tourist complexes
📅 16.10.2026 👁️ 3
MPs reject proposal to protect residents living in tourist complexes
Residents living in tourist or holiday complexes across the Canary Islands remain without the legal changes proposed to protect their homes after the ...
Sögu­legur dómur fyrir náms­menn í Hæsta­rétti - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Sögu­legur dómur fyrir náms­menn í Hæsta­rétti - Vísir
Hæstiréttur sneri við dómi Landsréttar í gær en málið má rekja til þess þegar kona slasaðist í umferðarslysi árið 2019. Ágreiningur hennar við Vörð sn...
Börnin sem létust í skotárásinni voru á aldrinum 5–11 ára
📅 16.10.2026 👁️ 3
Börnin sem létust í skotárásinni voru á aldrinum 5–11 ára
Þrjú börn og kennari eru látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-ríki í Bandaríkjunum í gær.Breska ríkisútvarpið greinir frá því að árásarmaðurinn ...
Breyta kennsluaðferðum vegna gervigreindar
📅 16.10.2026 👁️ 3
Breyta kennsluaðferðum vegna gervigreindar
Sögukennarar í Kvennaskólanum og Verzlunarskóla Íslands hafa breytt verkefnavinnu nemenda vegna áhrifa gervigreindar. Nemendur vinna nú verkefni í tím...
Hand­tekinn fyrir hótanir og vopna­laga­brot - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Hand­tekinn fyrir hótanir og vopna­laga­brot - Vísir
Í dagbók lögreglu er greint frá atvikum sem áttu sér stað frá klukkan 17:00 í gærdag og þar til klukkan 5:00. Þar er greint frá því að í umdæmi lögreg...
FRIDAY WEATHER: Warm across the Canary Islands with temperatures reaching 30°C
📅 16.10.2026 👁️ 3
FRIDAY WEATHER: Warm across the Canary Islands with temperatures reaching 30°C
The Canary Islands will enjoy another warm day this Friday, 16th October, with temperatures still above average for the time of year reaching around 3...
Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof
📅 16.10.2026 👁️ 4
Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof
Maðurinn sem lést þegar hann klifraði ofan í gryfju tígrisdýrs í dýragarði í Yorkshire á Englandi hafði lengi glímt við geðræn vandamál.Breska ríkisút...
Met needs to move away from criminalising sex workers, officers say after Levy failings
📅 16.10.2026 👁️ 4
Met needs to move away from criminalising sex workers, officers say after Levy failings
The force is piloting a two-officer female team in north London to engage with street sex workers, in a bid to improve trust.
Ship attack reports near Hormuz reach record high as oil exports slow
📅 16.10.2026 👁️ 2
Ship attack reports near Hormuz reach record high as oil exports slow
BBC Verify analysis of data from a UK maritime agency shows 12 vessels were struck in a week.