47. þingi Alþýðusambands Íslands lýkur í dag.
Þar verður nýr forseti kjörinn til tveggja ára. Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, gaf ekki kost á sér áfram.
Forsetakjörið hefst klukkan 10. Það þykir líklegt að niðurstaða úr því verði komin fyrir hádegi.
Arnaldur Grétarsson markaðs- og samfélagsmiðlasérfræðingur og Georg Páll Skúlason formaður Grafíu eru í framboði til embættisins.
Fleiri gætu þó bæst við enda er frestur til að bjóða sig fram til klukkan 10.
Þá verða þrír varaforsetar kjörnir á þinginu. Tillaga um að fækka þeim var felld í gær.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR hafa báðar lýst því yfir opinberlega að þær sækist eftir embætti fyrsta varaforseta ASÍ.