„Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingis­manna“ - Vísir

„Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingis­manna“ - Vísir

„Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingis­manna“ - Vísir

Ákvörðun þingmannsins Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar kom mörgum í opna skjöldu. Í viðtali við Vísi í gær sagðist hann hafa íhugað að segja sig úr þingflokknum síðan í sumar og að ákvörðunin tengist ekki neinum embættum.

„Það hefur verið pólitískur ágreiningur við forystu þingflokksins um pólitískar áherslur. Ég hefði viljað sjá meiri áherslu á frelsi og einstaklingsfrelsi og síðan kannski líka málefni barna í alvarlegum vanda sem er bara mál sem ég hef brunnið fyrir og reynt að beita mér fyrir. Það hefur vissulega margt áunnist í þeim málaflokki en ég hef stundum kvartað yfir því að ég hafi ekki alveg verið að fá backup í þeim málum. Þetta er svolítið sitt lítið af hvoru,“ sagði Jón í gær.

Jón mun áfram styðja ríkisstjórnina og samkvæmt Pawel Bartoszek, þingflokksformanni Viðreisnar, liggur fyrir samkomulag sem felur í sér að Jón mun halda sínum nefndarsætum og geta fengið stoðþjónustu frá flokknum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar sagði að henni fyndist ofboðslega vænt um Jón Gnarr og að það breyttist ekki þó að hann hefði ákveðið að starfa utan þingflokks Viðreisnar.

„Ég hefði auðvitað kosið að hafa Jón áfram í þingflokknum en ég virði ákvörðun hans og mér þykir vænt um að hann ætli áfram að styðja ríkisstjórnina og þau verkefni sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Mér þykir líka vænt um að hann haldi áfram í Viðreisn og hann er að sjálfsögðu alltaf velkominn aftur í þingflokkinn okkar.“

„Áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu“

Margir hafa brugðist við fregnum af úrsögn Jóns á samfélagsmiðlum og sýnist sitt hverjum. Össur Skarphéðinsson, fyrrum ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir ákvörðun hans áfall fyrir Viðreisn.

„Þetta er líka áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu sem virðast ekki hafa verið í nægilegum tengslum við þingflokkinn til að skilja vanlíðan þingmanna,“ skrifar Össur og bætir við að málin sem Jón hafi nefnt séu fjarri því að vera fallin til pólitísks ágreinings.

Jafnframt gerir Össur orð Jóns, um að þingflokkur Viðreisnar sé í áfalli eftir tapið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í sumar, að umfjöllunarefni.

„Mörgum finnst nefnilega þeir þurfa skýringar, lyktir, á framkvæmd baráttunnar sem felast í öðru en því að andstæðingar ESB hafi verið svo duglegir að ljúga. Það skýrir vitaskuld ekki hvernig tókst að snúa yfirburðafylgi upp í tap á tæpu sumri.“

„Hvernig túlkum við það?“

Annar fyrrverandi þingmaður, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, er líka á ESB-nótum en hún skrifar svar við færslu Össurar.

„Hans helsti bandamaður stýrði ESB baráttunni. Hvernig túlkum við það?“ spyr Sigríður Ingibjörg og er þar væntanlega að vísa í Heiðu Kristínu Helgadóttur sem fór fyrir baráttu Já-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Jón og Heiða Kristín unnu saman fyrir Besta flokkinn í borgarstjórn á sínum tíma.

Hagfræðingurinn Erna Bjarnadóttir hafði sig mikið í frammi í tengslum við áðurnefnda þjóðaratkvæðagreiðslu og hún setur ákvörðun Jóns í samhengi við niðurstöðu hennar og viðbrögð Þorgerðar Katrínar í kjölfarið.

Erna hefur kallað eftir afsögn utanríkisráðherra síðan niðurstaða atkvæðagreiðslunnar varð ljós.

„Þorgerður Katrín hefur þess í stað kosið að sitja sem fastast og gera andstæðingum sínum upp skoðanir. Í ræðu sinni um bókun 35 gekk hún svo langt að gera andstöðu við frumvarp sitt að andstöðu við EES-samninginn. Á meðan sitja flokksfélagar hennar eftir án þess uppgjörs sem þarf til að marka leiðina fram á við á grundvelli niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar,“ skrifar Erna.

Eins og að fá stangastökkvara í fótboltalið

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrum alþingismaður, segir að þingstörf séu hópíþrótt og að það sé alltaf hættuspil fyrir flokka að freistast til að fá til liðs við einstaklinga sem hafa aflað sér vinsælda á öðrum vettvangi en í stjórnmálum.

„Soldið eins og fá afburða snjallan stangastökkvara í fótboltalið. Hætt við að hann bara hangi frammi í leikjum og reyni að finna leiðir til að stökkva yfir markið. Og verði frústreraður þegar það er ekki í boði,“ skrifar Guðmundur Andri.

Guðmundur Andri var kjörinn á Alþingi fyrir Samfylkinguna í alþingiskosningunum árið 2017 en náði ekki endurkjöri í kosningunum að fjórum árum liðnum.Vísir/Vilhelm

„Jón Gnarr er góður þingmaður sýnist mér, sem nenni þó lítið að fylgjast með pólitíkinni, þó augljóslega sé hann ekki hópíþróttamaður,“ skrifar Guðmundur Andri enn fremur. 

Stjórnsýslufræðingurinn Haukur Arnþórsson segist hafa skrifað pistil um brotthvarf Jóns úr Viðreisn byggðan á fréttum dagsins en hann hafi síðan tekið hann út eftir viðtal Jóns í Kastljósi þar sem hann hafi gefið allt aðrar skýringar en áður hafi komið fram.

„Pistill minn fjallaði um hvað mótdrægt það geti verið að vera stjórnarþingmaður og þurfa að einhverju marki að lúta aga (forgangsröðun, stuðningi/andstöðu við mál) þingsflokksformannsins/þingflokksins. Slíkt hefur alltaf tekið á einstaklingshyggjumenn,“ skrifar Haukur en bætir við að allt annað hafi komið fram í viðtali hans í Kastljósi.

„Einkum dylgjur um einstaklinga, þingflokkinn og flokksforystuna, án þess að þær væru útskýrðar betur svo nokkru næmi. Þær voru svo rækilega undir beltisstað og fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna að ég fjalla ekki frekar um brotthvarf Jóns úr Viðreisn,“ sem spáir því að búast megi við röðum af popúlískum málum sem hann komi ekki til með að ná fram einn.

„Hann á fljótlega eftir að bregðast ríkisstjórninni í sífellt fleiri tilfellum og svo flokknum sínum fyrrverandi. Enda hefur hann bara lofað að styðja fjárlagatillögur ríkisstjórnarinnar (sem ég á eftir að sjá hann gera), en ekki önnur mál.“

„Forysta Viðreisnar virðist vera sjúk?!“

Ingvar Smári Birgisson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn RÚV, segir að Viðreisn hafi tekist að skilgreina sig þvert á þau gildi sem Jón leggi mikið upp úr að séu virt.

„Þó að Jón Gnarr sé ekki eiginlegur frjálshyggjumaður þá er sterk frelsistaug í honum. Honum gremst að ríkisvaldið (kerfið) njóti forgangs fram yfir hagsmuni einstaklinga og leggur mikið upp úr borgaralegum réttindum, t.d. tjáningarfrelsi, og skilur manna best að fólk getur gert mistök og bætt sig,“ skrifar Ingvar og bætir við að vonandi komi sá dagur fyrr en síðar að borgaralega sinnað fólk geti sameinast um að stjórna landinu.

Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar í hópinn Ísland, þvert á flokka að Jón hafi dregið mörk sín og lýst áhyggjum af því sem sé að gerast í þingflokki Viðreisnar. Sveinn nefnir mál Guðbrands Einarssonar, sem sagði af sér þingmennsku á síðasta ári, og Sigmars Guðmundssonar sem Sveinn segir að hafi misst stöðu sína sem þingflokksformaður þegar hann sneri til baka úr veikindaleyfi.

„Það er ljóst að formaður Viðreisnar er að fara offari og aðstæður eru óheilbrigðar, fólk er að rotta sig saman, fólk er alvarlega veikt og að því vegið með ýmsum hætti. Forysta Viðreisnar virðist vera sjúk!?“ segir í færslu Sveins.

Á pari við Flokk fólksins og enginn í þingflokknum sem hefur haft lag á Jóni

Þá segir lögmaðurinn Sigurður Guðni Guðjónsson að af viðtali Jóns í Kastljósinu verði það eitt ráðið að Viðreisn sé stjórnlaust rekald á hinu pólitíska hafi. Hann hafi lýst þingflokki Viðreisnar sem heimili alkóhólista sem hann hafi ákveðið að yfirgefa.

„Viðreisn virðist samkvæmt Jóni Gnarr vera á pari við Flokk fólksins í stjórn- og stefnuleysi að frátöldu því að tryggja forystunni gott viðurværi.“

Rithöfundurinn Páll Baldvin Baldvinsson segir að Jón og Tvíhöfða-félagi hans Sigurjón Kjartansson hafi byggt á sömu tækni og Abott og Castello og Martin og Lewis.

„Trúðurinn og sá venjulegi, sá sem hlustaði á spaugið og svaraði með eins atkvæðis orðum og spurði. Það var uppleggið sem hratt JG á stóra sviðið. Hann er núna sóló, einstakur sem hann er. Mér leist aldrei á þingmannsferil hans en það hefur sýnilega enginn verið í þingflokknum sem hafði lag á honum.“

„Þá bað hann einhvern um að loka glugga“

Hótelstýran Margrét Rósa Einarsdóttir spyr hvort Jón hafi einfaldlega ekki bara verið latur.

„Þarf maður ekki að gera eitthvað sjálfur til að breyta umhverfinu ef maður er ekki ánægður? En nú getur hann bara verið þarna og hugsað um sitt.“

Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistardoktor, segir að Jón Gnarr hafi verið allt annað en latur.

Tónlistarspekúlantinn Arnar Eggert Thoroddsen er fljótur að svara Margréti Rósu.

„Það má segja margt um Jón en hann er ansi langt frá því að vera latur.“

Egill Helgason segir ekki nýtt að óbreyttir þingmenn finni til valda- og áhrifaleysis.

„Svo sætta þeir sig misjafnlega mikið við það. Kunn er sagan af þingmanninum sem á að hafa talað aðeins einu sinni í þingsal heilt kjörtímabil. Þá bað hann einhvern um að loka glugga,“ skrifar Egill.

#fyrir #maður #neðan #sem #siðgæðiskröfur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262949249d/-fyrir-nedan-sidgaediskrofur-sem-madur-gerir-til-althingismanna-

📰 Aðrar fréttir

Sérfræðingur í líkamstjáningu um framkomu hertogahjónanna: „Héldu fast hvert í annað eins og eftirlifendur hamfara“
📅 16.10.2026 👁️ 1
Sérfræðingur í líkamstjáningu um framkomu hertogahjónanna: „Héldu fast hvert í annað eins og eftirlifendur hamfara“
Hertogahjónin af Sussex, Harry prins og Meghan Markle, létu sjá sig í Nottingham í gær í sinni fyrstu opinberu heimsókn eftir að þau fluttu aftur til ...
North West svarar fyrir umdeilt útlit
📅 16.10.2026 👁️ 2
North West svarar fyrir umdeilt útlit
North West svarar gagnrýnisröddum og segist ekki vera „djöfulleg“.North er dóttir raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og rapparans North West. Hún...
Samfélagsmiðlar loga eftir ákvörðun Jóns Gnarr
📅 16.10.2026 👁️ 2
Samfélagsmiðlar loga eftir ákvörðun Jóns Gnarr
Samfélagsmiðlar hafa logað eftir að Jón Gnarr ákvað að segja sig úr þingflokki Viðreisnar og verða sjálfstæður þingmaður. Hann ætlar þó áfram að styðj...
Efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins hefjast hjá Klíníkinni Ármúla
📅 16.10.2026 👁️ 2
Efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins hefjast hjá Klíníkinni Ármúla
Sjúklingar sem þurfa á efnaskiptaaðgerðum að halda munu nú geta fengið þjónustuna á Íslandi með greiðsluþátttöku ríkisins, að uppfylltum skilyrðum Sjú...
Ver að flóttafólk fái forgang í húsnæði – Ungt innfætt fólk getur „sem betur fer“ búið hjá foreldrum sínum
📅 16.10.2026 👁️ 1
Ver að flóttafólk fái forgang í húsnæði – Ungt innfætt fólk getur „sem betur fer“ búið hjá foreldrum sínum
Hollenski húsnæðisráðherrann Elanor Boekholt-O’Sullivan hefur sætt vægast sagt harðri gagnrýni eftir að hún sagði að margir sem væru að stíga sín fyrs...
Sex was 'huge preoccupation for Russell Brand', former flatmate tells trial
📅 16.10.2026 👁️ 1
Sex was 'huge preoccupation for Russell Brand', former flatmate tells trial
The 51-year-old faces three counts of rape, three charges of sexual assault and one of indecent assault, which he denies.
Norwegian teen 'hitman' Johannes Natland detained for UK murder plot
📅 16.10.2026 👁️ 1
Norwegian teen 'hitman' Johannes Natland detained for UK murder plot
Johannes Natland, 19, travelled to West Yorkshire to carry out a "hit" in March last year.
Georg Páll er nýr forseti ASÍ
📅 16.10.2026 👁️ 2
Georg Páll er nýr forseti ASÍ
Georg Páll Skúlason, nýkjörinn forseti, sagði það vera afskaplega mikinn heiður að vera kjörinn í embættið. Hann hét því að vinna af festu að hagsmunu...
Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir ára­mót - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 1
Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir ára­mót - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klíníkinni. Samkomulagið er niðurstaða viðræðna undanfarinna mánaða og byggist á þjónustusamningi frá árinu 2025. Þ...
Georg Páll er næsti for­seti ASÍ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 1
Georg Páll er næsti for­seti ASÍ - Vísir
Bjarki Sigurðsson, fréttamaður okkar, er á Hilton Reykjavík þar sem þingið fer fram og mun freista þess að ná viðtali við nýjan forseta þegar niðursta...
Action needed to save water, minister tells MPs
📅 16.10.2026 👁️ 2
Action needed to save water, minister tells MPs
Severe drought was declared across parts of southern England after months of low rainfall.
Svarar gagnrýnisröddum og segist alls ekki of gömul til að vera ófrísk
📅 16.10.2026 👁️ 2
Svarar gagnrýnisröddum og segist alls ekki of gömul til að vera ófrísk
Leikkonan Hilary Swank ræddi um tvöfalda staðla í samfélaginu og neikvæð viðbrögð í kjölfar þess að hún tilkynnti að hún væri ólétt, 52 ára að aldri.„...
Hjónadjöflar
📅 16.10.2026 👁️ 2
Hjónadjöflar
Hjónadjöflar Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Djöflar eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Hvenær er sam­bandi lokið? Hvenær er ástin ...
Slasaði sig á dularfullri saumnál í bílaleigubílnum en fær ekki endurgreitt
📅 16.10.2026 👁️ 2
Slasaði sig á dularfullri saumnál í bílaleigubílnum en fær ekki endurgreitt
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu ferðamanns um endurgreiðslu á leigu fyrir bílaleigubíl og greiðslu skaðabóta vegna meiðsla sem han...
Losum um hnútinn: 163 aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
📅 16.10.2026 👁️ 2
Losum um hnútinn: 163 aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
Jafnvægisvogin veitti á miðvikudag 163 fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum viðurkenningu fyrir kynjajafnvægi í framkvæmdastjórnum. Það er 27,3% f...
Skólahald í skjóli loftvarnaflauta
📅 16.10.2026 👁️ 2
Skólahald í skjóli loftvarnaflauta
Skólahald í skjóli loftvarnaflauta Skóla­hald í Grinda­vík hefur gengið vel og óslitið frá því það hófst í lok ágúst. Loft­varn­arflautur eru próf­aða...
Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smá­at­riði - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smá­at­riði - Vísir
„Hafnarfjörður er yndislegur bær og sérstaklega góður kostur fyrir fjölskyldufólk. Hér eru öflugir skólar, fjölbreytt menningarlíf, góðir veitingastað...
Trump vill semja við Rússland og Kína um kjarnorkuafvopnun – möguleg tímamót í samskiptum stórveldanna
📅 16.10.2026 👁️ 2
Trump vill semja við Rússland og Kína um kjarnorkuafvopnun – möguleg tímamót í samskiptum stórveldanna
Trump vill semja við Rússland og Kína um kjarnorkuafvopnun – möguleg tímamót í samskiptum stórveldanna Fréttin16. október 2026ErlentLeave a Comment Sa...
Tvær mótsagnir Þorgerðar valda vanhæfi
📅 16.10.2026 👁️ 2
Tvær mótsagnir Þorgerðar valda vanhæfi
Tvær mótsagnir Þorgerðar valda vanhæfi Fréttin16. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín ut...
Öryggi barna gleymist í heimi þar sem hugmyndafræði ræður ríkjum
📅 16.10.2026 👁️ 2
Öryggi barna gleymist í heimi þar sem hugmyndafræði ræður ríkjum
Öryggi barna gleymist í heimi þar sem hugmyndafræði ræður ríkjum Fréttin16. október 2026Aðsend grein, Helga Dögg Sverrisdóttir, InnlentLeave a Comment...
Essex dad sentenced after son died in Cyprus hotel fall
📅 16.10.2026 👁️ 2
Essex dad sentenced after son died in Cyprus hotel fall
Joshua Foster will have to pay 3,000 euro (£2,500), a judge in Paphos rules.
Oregon school shooting: 'We are heartbroken and horrified'
📅 16.10.2026 👁️ 2
Oregon school shooting: 'We are heartbroken and horrified'
A 16-year-old killed three children and a teacher at a primary school in Oregon before he was killed by a bystander, police say.
Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump
📅 16.10.2026 👁️ 2
Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump
Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump „Nú er tím­inn til að auka stuðn­ing okkar og herða þrýst­ing­inn“ segir António Costa...
Police officer who raped two women jailed for 12 years
📅 16.10.2026 👁️ 2
Police officer who raped two women jailed for 12 years
Campbell Petrie was found guilty of physical and sexual abuse towards the women between 2006 and 2023.
Hvetur Veður­stofuna til að brjóta odd af of­læti sínu - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 2
Hvetur Veður­stofuna til að brjóta odd af of­læti sínu - Vísir
Þetta segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, í færslu á Facebook í kjölfar lægðarinnar sem gekk yfir landið á miðvikudaginn. Lægð...
Facebook og Instagram rukka fyrirtæki fyrir fleiri en 2 hlekki
📅 16.10.2026 👁️ 3
Facebook og Instagram rukka fyrirtæki fyrir fleiri en 2 hlekki
Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, er byrjað að rukka fyrirtæki sem halda úti síðum fyrir að geta sett hlekk...
Talsverðar breytingar fram undan hjá þeim sem ætla að kaupa rafbíl – Aðeins tvær vikur til stefnu
📅 16.10.2026 👁️ 3
Talsverðar breytingar fram undan hjá þeim sem ætla að kaupa rafbíl – Aðeins tvær vikur til stefnu
Talsverðar breytingar verða á styrkjum til rafbílakaupa frá og með 1. nóvember næstkomandi. Styrkir vegna kaupa á nýjum rafbílum lækka um 100 þúsund k...
Zelensky rallies EU support as Trump says Ukraine leader 'more difficult to deal with than Putin'
📅 16.10.2026 👁️ 3
Zelensky rallies EU support as Trump says Ukraine leader 'more difficult to deal with than Putin'
The US president launches a new wave of blistering criticism at Volodymyr Zelensky ahead of a meeting of EU leaders in Brussels.
Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Gróft kyn­líf en ekki nauðgun sam­kvæmt klofnum Lands­rétti - Vísir
Atvikin áttu sér stað að morgni 10. apríl 2023 á heimili mannsins. Samkvæmt ákæru beitti hann konuna ofbeldi og ólögmætri nauðung og hafði við hana ön...
Veikir og dauðir fuglar voru með fuglainflúensu
📅 16.10.2026 👁️ 3
Veikir og dauðir fuglar voru með fuglainflúensu
Fjöldi dauðra og veikra fugla hefur fundist víða um land síðustu vikurnar. Ekki er vitað hversu mikil útbreiðslan er.Búið er að greina fuglainflúensu ...
Flugskeyti sem send voru til Úkraínu seld á „opnum markaði“ – Trump
📅 16.10.2026 👁️ 3
Flugskeyti sem send voru til Úkraínu seld á „opnum markaði“ – Trump
Flugskeyti sem send voru til Úkraínu seld á „opnum markaði“ – Trump Fréttin16. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Donald Trump, ...
Nýr forseti ASÍ kosinn í dag
📅 16.10.2026 👁️ 3
Nýr forseti ASÍ kosinn í dag
47. þingi Alþýðusambands Íslands lýkur í dag.Þar verður nýr forseti kjörinn til tveggja ára. Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, gaf ekki k...
Doctor regrets not going to police earlier about Lucy Letby
📅 16.10.2026 👁️ 3
Doctor regrets not going to police earlier about Lucy Letby
Dr Stephen Brearey was the lead neonatal consultant at the hospital where the nurse worked.
Ræða undirbúning fyrir erfiðan vetur í Úkraínu
📅 16.10.2026 👁️ 3
Ræða undirbúning fyrir erfiðan vetur í Úkraínu
Undirbúningur í Úkraínu fyrir það sem lítur út fyrir að vera erfiður vetur, er ofarlega á dagskrá leiðtogafundar Evrópusambandsins í Brussel í dag. Vo...
Canary Islands Government proposes ten-year residency rule for home buyers
📅 16.10.2026 👁️ 1
Canary Islands Government proposes ten-year residency rule for home buyers
Anyone wanting to buy a home in the Canary Islands could have to prove they have lived in the archipelago for at least ten years under proposals sent ...
Líður stórkostlega andlega og líkamlega - Litlu breytingarnar sem hún gerði
📅 16.10.2026 👁️ 3
Líður stórkostlega andlega og líkamlega - Litlu breytingarnar sem hún gerði
Hin breska Alison Cork léttist um tæp 32 kíló á 18 mánuðum án þess að nota þyngdartapssprautur. Hún útskýrir hvernig henni tókst það í kringum sextugt...
Hefur rannsakað mataræði í 30 ár: Prófessor mælir með 80 prósenta reglunni
📅 16.10.2026 👁️ 3
Hefur rannsakað mataræði í 30 ár: Prófessor mælir með 80 prósenta reglunni
Það þarf hvorki að fylgja ströngum mataræðisreglum né neita sér um allan óhollan mat til að bæta heilsuna. Raunar er mun líklegra að fólk haldi sig vi...
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 4
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur - Vísir
Þetta er ákveðið ástand sem virðist hafa komið upp reglulega frá því Trump varð aftur forseti. Hann hefur flakkað á milli þess að vera gagnrýninn á Rú...
Fiskikóngurinn æfur yfir ákvörðun Jóns Gnarr – „Meira helvítis ruglið þarna“
📅 16.10.2026 👁️ 3
Fiskikóngurinn æfur yfir ákvörðun Jóns Gnarr – „Meira helvítis ruglið þarna“
Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, er allt annað en sáttur við ákvörðun Jóns Gnarr um að segja skilið við Viðreisn en sitja á...
Landsréttur klofnaði þegar fimm ára fangelsi var breytt í sýknudóm
📅 16.10.2026 👁️ 4
Landsréttur klofnaði þegar fimm ára fangelsi var breytt í sýknudóm
Karlmaður á fertugsaldri var í gær sýknaður af ákæru um nauðgun. Landsréttur sagði ekki sannað að hann hefði brotið af sér.Maðurinn var sakfelldur og ...
Ung­börn á­fram bólu­sett gegn RS-veiru - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Ung­börn á­fram bólu­sett gegn RS-veiru - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90% foreldra þá...
Data breaches and expats: what Canary Islands residents should check
📅 16.10.2026 👁️ 3
Data breaches and expats: what Canary Islands residents should check
Moving to the Canary Islands usually means opening a Spanish bank account, registering on the padrón, getting an NIE, signing up with a local phone pr...
Á­rásar­maðurinn sex­tán ára - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Á­rásar­maðurinn sex­tán ára - Vísir
Árásin átti sér stað í gær og greinir BBC frá. Árásarmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur en hann braust inn í Silver Rail-grunnskólann með því að s...
Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur
📅 16.10.2026 👁️ 3
Fluttar nauðungarflutningi til Finnmerkur
Meirihluti þeirra íslensku sakamanna sem sendir voru í afplánun refsidóma til Danmerkur var dæmdur fyrir þjófnað. Um miðja átjándu öld voru mikil harð...
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu - Vísir
Í frétt Reuters segir að tveir bandarískir embættismenn og einn vestrænn hafi fengið upplýsingar um málið og segir að yfirmenn í bandaríska varnarmála...
Tals­verð rigning næstu daga - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Tals­verð rigning næstu daga - Vísir
Þetta segja spár Veðurstofunnar. Vaxandi sunnanátt í fyrramálið og dálítil væta en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Talsverð rigning á morgun. S...
Appeal to find missing Irish holidaymaker in Fuerteventura
📅 16.10.2026 👁️ 3
Appeal to find missing Irish holidaymaker in Fuerteventura
An appeal has been shared to help find a holidaymaker who went missing during a solo trip to Fuerteventura. Gary Johnston, 52, flew from Dublin to the...
„Tárin streymdu niður vangann á mér“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
„Tárin streymdu niður vangann á mér“ - Vísir
Þetta skrifaði hin þrettán ára Matthildur Yrsa Sigurðardóttir í nýútgefinni bók sem ber titilinn Síðasti dagurinn. Hún tók upp á því aðeins ellefu ára...
„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“ - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“ - Vísir
Kjartan Logi hefur gert það gott með grínsketsum sínum á samfélagsmiðlum síðustu tvö árin og fengið í framhaldinu hlutverk í sjónvarpsþáttum og auglýs...
Stærsti hluthafi Ölgerðarinnar um rannsóknina: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt“
📅 16.10.2026 👁️ 3
Stærsti hluthafi Ölgerðarinnar um rannsóknina: „Afstaða mín til siðferðis í viðskiptum er skýr og óbreytt“
Annar af stærstu hluthöfum Ölgerðarinnar, Bogi Þór Siguroddsson, segir að hann taki umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um fyrirtækið alvarlega. ...