Samfélagsmiðlar hafa logað eftir að Jón Gnarr ákvað að segja sig úr þingflokki Viðreisnar og verða sjálfstæður þingmaður. Hann ætlar þó áfram að styðja ríkisstjórnina og starfa með henni á þingi. Jón sagði í viðtali í Kastljósi í gærkvöldi að ástæðan væri langvarandi skortur á skýrri forystu, aðstæðurnar séu óheilbrigðar og þá sé líka klíkumyndun. Líkti hann ákvörðuninni við að flytja af heimili alkahólista og í næsta hús.
Samfélagsmiðlar loga eftir ákvörðun Jóns Gnarr