Sjúklingar sem þurfa á efnaskiptaaðgerðum að halda munu nú geta fengið þjónustuna á Íslandi með greiðsluþátttöku ríkisins, að uppfylltum skilyrðum Sjúkratrygginga Íslands. Í fréttatilkynningu kemur fram að Sjúkratryggingar Íslands og Klíníkin Ármúla hafa náð samkomulagi um framkvæmd aðgerðanna á grundvelli þjónustusamnings frá árinu 2025. Frá árinu 2022 hefur þjónustan á vegum ríkisins farið fram í Svíþjóð. Samkomulagið markar því mikilvægt framfaraskref fyrir sjúklinga og jákvæða þróun fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi og samfélagið í heild.
Efnaskiptaaðgerðir á vegum ríkisins hefjast hjá Klíníkinni Ármúla