Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klíníkinni. Samkomulagið er niðurstaða viðræðna undanfarinna mánaða og byggist á þjónustusamningi frá árinu 2025. Það nær til tímabilsins frá 1. nóvember til 31. desember á þessu ári.
Efnaskiptaaðgerðir eru skurðaðgerðir sem beitt er við meðferð offitu, meðal annars magaermi og magahjáveita.
Hafa sótt aðgerðir til Svíþjóðar
Í tilkynningunni segir að sjúklingar hafi frá árinu 2022 sótt þjónustuna til Svíþjóðar á vegum ríkisins. Efnaskiptaaðgerðir hafa jafnframt verið framkvæmdar á Landspítala með opinberri greiðsluþátttöku, eins og fram kemur í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi.
Klíníkin hefur samkvæmt tilkynningunni framkvæmt efnaskiptaaðgerðir í um áratug. Að meðferðinni kemur teymi heilbrigðisstarfsfólks úr ólíkum fagstéttum og áhersla er lögð á skipulagða eftirfylgd.
„Við fögnum því að þessi mikilvæga þjónusta verði nú aðgengileg fleiri sjúklingum hér á landi. Efnaskiptaaðgerðir eru gott dæmi um heilbrigðisþjónustu sem við höfum bæði þekkingu og aðstöðu til að veita á Íslandi,“ segir Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Ármúla, í tilkynningunni.
Vilja horfa til ferðakostnaðar og skatttekna
Klíníkin telur að aðgerðir hér á landi geti dregið úr álagi á sjúklinga og aðstandendur með því að fækka utanlandsferðum. Þá geti verið auðveldara að tryggja samfellda þjónustu frá undirbúningi að eftirfylgd.
Félagið leggur jafnframt áherslu á að við samanburð á kostnaði við aðgerðir hér og erlendis þurfi að taka tillit til ferðakostnaðar, atvinnusköpunar og skatttekna af innlendri starfsemi.