Hollenski húsnæðisráðherrann Elanor Boekholt-O’Sullivan hefur sætt vægast sagt harðri gagnrýni eftir að hún sagði að margir sem væru að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði gætu „sem betur fer“ áfram búið hjá foreldrum sínum. Þessi ummæli lét hún falla þegar hún var spurð um stöðu þeirra á meðan flóttafólk með dvalarleyfi fengi forgang að félagslegu leiguhúsnæði.
Ráðherrann, sem tilheyrir flokknum D66, sagði í viðtali við De Telegraaf að finna þyrfti raunhæfa húsnæðislausn fyrir flóttafólkið áður en hægt væri að afnema forgang þess í félagslegt húsnæði.
Vísaði til þess að fólk gæti áfram búið heima
Boekholt-O’Sullivan sagði að án húsnæðis þyrfti flóttafólkið að dvelja áfram á móttökustöðvum, enda á götunni eða fá inni á hótelum eða skemmtiferðaskipum.
Þegar hún var spurð hvaða úrræði stæðu þá þeim innfæddu til boða sem væru að reyna að komast inn á húsnæðismarkaðinn vísaði hún til þess að margir gætu áfram búið hjá foreldrum sínum. Hún tók fram að það væri ekki ákjósanlegt og að sá möguleiki stæði ekki öllum til boða.
Ráðherrann sagðist jafnframt sjá erfiðar aðstæður á ferðum sínum um landið og að leysa þyrfti húsnæðisvanda þessa hóps líka.
Þingmaður stjórnarflokks krafðist afsökunar
Ummælin voru tekin upp í þingumræðu 14. október. Jurgen Nobel, þingmaður stjórnarflokksins VVD, gagnrýndi ráðherrann og krafðist þess að hún bæði afsökunar. Hann vildi skýr svör um að forgangurinn yrði afnuminn.
Samkvæmt stjórnarsáttmálanum mega sveitarfélög áfram veita flóttafólki með dvalarleyfi forgang að félagslegu leiguhúsnæði þar til nægilegt húsnæði hefur verið tryggt fyrir hópinn.