Bjarki Sigurðsson, fréttamaður okkar, er á Hilton Reykjavík þar sem þingið fer fram og mun freista þess að ná viðtali við nýjan forseta þegar niðurstaða liggur fyrir. Fylgist með í beinni í spilaranum hér að neðan:
Í framboði til forseta voru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu.
Þar sem að Georg bar sigur úr býtum er ljóst að Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, mun ekki draga framboð sitt til fyrsta varaforseta til baka en miklar deilur hafa staðið yfir um embættið síðustu daga.
Fulltrúar munu greiða atkvæði um varaforseta seinna í dag en þar eru þær Halla Gunnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í framboði. Þær hafa farið mikinn á samfélagsmiðlum síðustu daga en Sólveig hefur til að mynda sakað Höllu um að reyna sölsa undir sig völd innan ASÍ og hefur Halla sagt orð Sólveigar um að draga eflingu úr sambandinu jaðra við hótanir.
Georg ávarpar nú salinn og þakkar fyrir stuðninginn.