Treyjudagurinn er í dag. Þetta er í fyrsta skipti á Íslandi sem haldið er formlega upp á hann. Fólk er hvatt til að klæðast uppáhalds íþróttatreyju sinni til að sýna samstöðu og stuðning við börn sem glíma við krabbamein og fjölskyldur þeirra.
Á vef Treyjudagsins kemur fram að hann hafi fyrst verið haldinn á Englandi 2013. Treyjudagurinn, í núverandi mynd, byggist á danskri fyrirmynd frá 2019. Fljótlega bættust Noregur og Svíþjóð í hópinn og nú hefur Ísland bæst í hópinn.
Nemendur og starfsfólk Öldutúnsskóla í Hafnarfirði tóku sig til og mynduðu hring í kringum skólann. Stefán Jón Ingvarsson, myndatökumaður fréttastofunnar, kíkti við og myndaði gjörninginn.