Þarf samstillt átak gegn verðbólgu: „Enginn styður það meira en ég“

Þarf samstillt átak gegn verðbólgu: „Enginn styður það meira en ég“

Þarf samstillt átak gegn verðbólgu: „Enginn styður það meira en ég“

Verðhækkanir voru á breiðari grundvelli í ágúst og það er óheppilegt ef framhald verður af því, segir greiningardeild Landsbankans, um aukna verðbólgu í ágúst.

Flestir liðir sem teknir eru fyrir í mælingum Hagstofunnar leiddu til aukinnar verðbólgu í ágúst. Mestu munaði um húsnæðiskostnað sem hækkaði óvenju mikið. Greiningardeildin leiðir að því líkur að verðtryggðir leigusamningar hafi haft sín áhrif.

Því var snemma spáð að sólmyrkvinn myndi leiða til meiri verðbólgu en annars hefði verið. Ástæðan er ekki síst hversu margir lögðu land undir fót og flugu milli landa til að verða vitni að honum. Greiningardeildin segir áhrifin þó hafa orðið minni en spáð var. Það sést best á því að flugfargjöld til útlanda lækkuðu meira en spáin sagði til um.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að samkomulag verði að nást um aðgerðir til að ná vöxtum og verðbólgu niður. Rætt var við hann í hádegisfréttum RÚV.

Daði segir að lengi hafi stefnt í að verðbólgan yrði meiri en stefnt var að í kjarasamningum. Þess vegna hafi ríkið rætt við aðila vinnumarkaðarins frá því í vor.

Verðbólgan er komin í 5,6 prósent og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Aðilar vinnumarkaðarins hafa gagnrýnt gjaldahækkanir stjórnvalda.

„Það hefur mikið verið talað um það að hið opinbera hafi valdið þessu sem er ekki rétt,“ segir Daði Már.

„Gögn styðja það ekki að hið opinbera hafi ýtt undir verðbólguna. Raunar er það þannig að það eru ytri þættir sem hafa fyrst og fremst valdið þessu. Við sjáum það best í því að sá liður sem skýrir helminginn af hækkuninni á þessu ári eru flugfargjöld.“

Daði segir að álögur hafi ekki verið hækkaðar umfram það sem almennt er.

Hann segir að samstillt átak þurfi til að ná verðbólgu niður og stjórnvöld séu reiðubúin til þess. „Við höfum lagt fram tillögur sem hafa verið ræddar um aðgerðir.“

Daði segir að ljúka verði samtalinu við verkalýðshreyfinguna. Þjóðhagsráð fundar á morgun og þar verður farið yfir greiningar sem hafa verið gerðar. Hann segir að aðilar vinnumarkaðarins verði að koma sér saman um aðgerðir til að ná niður vöxtum og verðbólgu. „Enginn styður það meira en ég.“

Ragnhildur Helgadóttir fréttamaður ræddi við Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

Bjarni segir mikil vonbrigði hvernig síðasta ár hafi liðið án þess að náðst hafi árangur.

Við erum í raun og veru búin að tapa heilu ári í baráttunni við verðbólguna. Til þess að ná árangri í slíkri baráttu þarf að stilla betur saman strengi.“

Bjarni segir að verðbólgan hafi að hluta til verið sköpuð með aðgerðum innanlands. SA vill að vinnumarkaður og stjórnvöld taki af meiri alvöru utan um vandann og einsetji sér að ná betri árangri.

Veitufyrirtæki hafa hækkað gjaldskrár, gjöld hækkað á bifreiðar og krónutöluhækkanir hafa ekki hækkað til, segir Bjarni. Hann segir verðbólguna þó að hluta vegna utanaðkomandi atriða í heiminum sem Íslendingar hafi ekki stjórn á. Því verði menn að gæta þess við kjarasamningagerð að ráðstafa ekki fyrirframlega svo ríflega öllu svigrúmi að það megi ekkert á bjáta.

Bjarni segir að ekki dugi að bregðast við með skammtímaúrræðum heldur verði að vinna að því að gera betur inn í framtíðina.

„Ég veit að það sameinar aðila á vinnumarkaði að vilja vinna bug á verðbólgunni og styðja við lægri vexti. Það er ágætis byrjun en við erum ekki á nógu góðum stað akkúrat núna.“

Bjarni segir SA leggja sitt af mörkum til að viðbragðið við forsendubresti kjarasamninga leiði til þess að það dragi úr verðbólguvæntingum og líkur á að vextir geti lækkað aukist.

„Það eru langstærstu hagsmunir heimila, langstærstu hagsmunir fyrirtækja og miklir hagsmunir fyrir opinbera aðila að við komum úr þessu vaxtastigi sem hefur verið svo hátt svo lengi.“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, gagnrýnir stjórnvöld vegna aukinnar verðbólgu. Hann segir að undirliggjandi verðbólga sé nær 6,0 prósentum en 5,6% og vísar þar til áhrifa af lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Þetta segir hann í færslu á Facebook-síðu sinni.

Vilhjálmur telur stjórnvöld gera meira til að ýta undir verðbólgu en halda aftur af henni.

„Þau kasta sjálf viðstöðulaust spreki á verðbólgubálið!“

Vilhjálmur vísar til hækkana á komugjaldi á heilsugæslur, nýrrar gjaldtöku á ýmiss konar þjálfun innan heilbrigðiskerfisins og hækkandi háskólagjalda.

„Það er hreint út sagt sorglegt að horfa upp á stjórnvöld kasta viðstöðulaust spreki á verðbólgubálið með hækkunum á opinberum gjöldum á sama tíma og þau vita fullvel hversu alvarlegar afleiðingar verðbólgan og okurvextirnir hafa fyrir heimilin.“

„Forsendur kjarasamninga eru brostnar. Samningarnir voru gerðir eftir forskrift Seðlabankans á grunni hugmyndafræði um að laun séu helsti áhrifaþáttur verðbólgunnar og sé samið um lágar hækkanir gangi verðbólga niður og þá sé hægt að lækka stýrivexti,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í færslu á Facebook.

„Þessi hugmyndafræði hefur endanlega beðið skipbrot. Verðbólga er næstum heilu prósentustigi yfir viðmiði forsenduákvæðisins og hún er á breiðum grunni, næstum allt hefur hækkað. Hávaxtastefna Seðlabankans hefur varað í næstum fjögur ár.“

Næstu ákvarðanir þurfi að taka á grunni gagna og raunveruleikans – ekki hugmyndafræði. VR ætli að senda frá sér nánari greiningu á ársverðbólgunni og forsendubresti kjarasamninga.

„Við höfum fram til 8. október til að ákveða hvort við segjum upp kjarasamningum. Vonandi er andvaraleysið á undanhaldi.

Ragnhildur Helgadóttir fréttamaður ræddi við Finnbjörn Hermannsson, forseta Alþýðusambandsins, nokkrum mínútum eftir að Hagstofan birti verðbólgumælingu sína.

Forseti ASÍ segir verkalýðshreyfinguna þurfa raunveruleg loforð frá Samtökum atvinnulífsins og hinu opinbera til að ná niður verðbólgu.

„Ekki bara einhver vilyrði og „leitast skal við“ og „af fremsta megni“ eins og þau virðast hafa haldið að síðasta loforð var,“ segir Finnbjörn Hermannsson.

Miðað við tölurnar eru forsendur kjarasamninganna brostnar en forsendunefnd þarf formlega að gefa það út. „Sú nefnd kemur saman á mánudaginn og þá munum við ákveða viðbrögð við því.“

ASÍ, SA og hið opinbera hafa átt í viðræðum til að koma í veg fyrir að segja þurfi upp kjarasamningum og hafa til 8. október til að bregðast við.

„Í sjálfu sér þurfum við ekkert að nýta allan þann tíma. Við erum náttúrlega búin að vera í viðræðum – bæði við Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld frá því snemma í sumar, því það var ljóst að það stefndi í þetta,“ segir Finnbjörn.

Það kemur svo sem engum á óvart en við það að verðbólga mældist 5,6 prósent í ágúst brustu forsendur kjarasamninga frá 2024.

Í samningum var ákvæði um að ef verðbólga væri meiri en 4,7 prósent í ágúst væri hægt að segja þeim upp. Það gerist þó ekki sjálfkrafa. Aðilar vinnumarkaðarins verða að taka afstöðu til forsendnanna í næsta mánuði og meta framhaldið. Þeir geta ákveðið viðbrögð til að láta samninginn gilda eða sagt honum upp.

Verði kjarasamningum sagt upp falla þeir úr gildi 31. október.

Verðbólgan var 5,6 prósent í ágúst samkvæmt mælingu Hagstofunnar. Það er mesta verðbólga sem mælst hefur síðan í ágúst 2024. Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár.

Meðal þess sem hefur áhrif til aukinnar verðbólgu er að fataverð hefur hækkað eftir að útsölum lauk og kostnaður fólks vegna húsnæðis hefur aukist. Flugfargjöld lækkuðu þó milli mánaða eftir að hafa hækkað mikið í júlí.

Skráningargjald í opinberum háskólum hækkaði úr 75 þúsund í 100 þúsund krónur og það leiddi til 0,07 prósenta hækkunar neysluverðsvísitölunnar. Þetta er í fyrsta skipti í tólf ár sem skráningargjaldið hækkar.

Verðbólga hefur verið yfir fimm prósentum allt þetta ár. Síðustu ár hefur verðbólga mest farið í 10,2 prósent í febrúar 2023 og minnst mælst 3,7 prósent í nóvember í fyrra.

Rúmlega fimm prósenta verðbólga er langt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Stefna hans gengur út á að verðbólga sé sem næst 2,5 prósentum.

Stjórnvöld lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti til að draga úr áhrifum hækkana eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófst fyrr á þessu ári. Það dugði ekki til að halda verðbólgunni undir þeim mörkum sem virkja endurskoðunarákvæði kjarasamninga.

Góðan dag og velkomin á fréttavakt um verðbólgu í ágúst og áhrif hennar á kjaramál.

Hagstofan greinir frá því klukkan níu hversu mikil verðbólgan var í ágúst. Þegar gengið var frá kjarasamningum í febrúar 2024 var ákvæði um að hægt væri að segja þeim upp ef verðbólgan mældist yfir 4,7 prósentum í þessari verðbólgumælingu. Lengi hefur legið fyrir að svo yrði.

Verðbólgan var 5,3 prósent í síðasta mánuði. Landsbankinn spáir því að verðbólga hafi aukist í ágúst og verði 5,5 prósent, Íslandsbanki spáir aðeins meiri verðbólgu, 5,6 prósentum.

Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.

#gegn #samstillt #verðbólgu #átak #þarf


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-27-tharf-samstillt-atak-gegn-verdbolgu-enginn-stydur-thad-meira-en-eg-484980

📰 Aðrar fréttir

Sonur Walter White er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Sonur Walter White er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
📅 12.10.2026 👁️ 1
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
Kjarnorkuógn hefur ekki verið meiri síðan á hátindi kalda stríðsins, að sögn Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. ...
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 1
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, drew on his own experience for his role in the Emmy-winning drama series.
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
Staða hlaðvarpa á Íslandi hefur mikið verið til umræðu undanfarið eftir að Fjölmiðlanefnd skoraði á nokkur vinsælustu hlaðvörp landsins að skrá sig fo...
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
Er það bandaríski miðillinn TMZ sem greinir frá en þar segir að Selma Blair hafi verið um borð í vél flugfélagsins Delta Airlines á leið til John F. K...
Uppsagnir í hverjum mánuði
📅 12.10.2026 👁️ 1
Uppsagnir í hverjum mánuði
Verulega hefur hægt á í byggingariðnaði undanfarið og íbúðum í byggingu fækkað líkt og Spegillinn hefur fjallað um. Hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilb...
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 1
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
Helga Rósa Másdóttir formaður FÍS skrifar meðal annars um það í greininni að undirmannaðar deildir geti haft mikið að segja um öryggi sjúklinga og afd...
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
📅 12.10.2026 👁️ 1
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
While Ukraine's Volodymyr Zelensky suggests he would sign up to a ceasefire on energy infrastructure, Russia has said little.
Türk segir Alþjóðlega sakamáladómstólinn standa aðför Bandaríkjanna af sér
📅 12.10.2026 👁️ 2
Türk segir Alþjóðlega sakamáladómstólinn standa aðför Bandaríkjanna af sér
Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir aðför Bandaríkjastjórnar að Alþjóðlega sakamáladómstólnum algjörlega óásættanlega. Hann telur slíka aðför ...
Leikkona gekk berserksgang í flugi - Beit flugfreyju og reyndi að opna vélina
📅 12.10.2026 👁️ 2
Leikkona gekk berserksgang í flugi - Beit flugfreyju og reyndi að opna vélina
Leikkonan Selma Blair var handtekin eftir að hafa gengið berserksgang í flugi. Frá þessu greinir TMZ sem hefur það eftir vitnum og hljóðupptökum sem m...
Skiptar skoðanir um nýja Appelsínið: „Hvílík snilld sem þetta er!” - „Greinilega komið beint frá djöflinum“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Skiptar skoðanir um nýja Appelsínið: „Hvílík snilld sem þetta er!” - „Greinilega komið beint frá djöflinum“
Egils Appelsín hefur fylgt þjóðinni í meira en sjötíu ár, í mesta skammdeginu er því blandað við Malt eða Jólaöl til að búa til hátíðardrykk þjóðarinn...
Hvað veistu um... árið 1986? - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hvað veistu um... árið 1986? - Vísir
Sömuleiðis er þess nú minnst að fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Reykjavík þar sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, ...
Kæra leyfi Kaldvíkur og segja órannsakað hvaða áhrif aurskriður geti haft á sjókvíar
📅 12.10.2026 👁️ 2
Kæra leyfi Kaldvíkur og segja órannsakað hvaða áhrif aurskriður geti haft á sjókvíar
Vá – félag um vernd fjarðar hefur kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála leyfi Kaldvíkur til að reka sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Lögmaður...
„Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi að taka þetta samtal við fréttamann“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi að taka þetta samtal við fréttamann“
Forseti Alþingis segir að engar kvartanir hafi borist vegna 5 þingmanna Norðausturkjördæmis sem skelltu sér í sund eftir hefðbundinn lokunartíma og hy...
Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga
📅 12.10.2026 👁️ 2
Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga
Það er einkennilegt að þingmenn á Alþingi Íslendinga vilji taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum til að verja það að Íslendingar búi við skert réttindi...
Össur stendur með Sigmundi Davíð í stóra sundlaugarmálinu - Þetta er ástæðan
📅 12.10.2026 👁️ 2
Össur stendur með Sigmundi Davíð í stóra sundlaugarmálinu - Þetta er ástæðan
Fimm þingmenn Norðausturkjördæmis stálust í Selárlaug í Vopnafirði utan hefðbundins opnunartíma í nýliðinni kjördæmaviku. Frá þessu greindi RÚV á föst...
Sverrir bregst við þungum dómi fyrir skattsvik - „DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA“
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sverrir bregst við þungum dómi fyrir skattsvik - „DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA“
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem honum var gert að sæta fangelsi og að greiða 105 milljón króna sekt ...
Einar rýndi í nýjustu spárnar fyrir veturinn – Þetta gætum við átt í vændum
📅 12.10.2026 👁️ 2
Einar rýndi í nýjustu spárnar fyrir veturinn – Þetta gætum við átt í vændum
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir nýjar langtímaveðurspár gefa óvenjuskýrar vísbendingar um hvernig veðrið gæti þróast hér á landi í vetur.Spá...
Gull að leysa kókaín af hólmi - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Gull að leysa kókaín af hólmi - Vísir
Gull hefur hækkað verulega í verði á undanförnum árum og þar að auki er það ekki ólöglegt víða um heim eins og fíkniefni eru víðast hvar. Það er því a...
Sinnt út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sinnt út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
Hafði lögreglan í nægu öðru að snúast í dag en meðal þeirra mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar frá klukkan fimm í morgun til klukkan 17:00 voru...
Sinntu út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Sinntu út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
Hafði lögreglan í nægu öðru að snúast í dag en meðal þeirra mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar frá klukkan fimm í morgun til klukkan 17:00 voru...
Actress Selma Blair arrested after allegedly attacking attendants on flight
📅 12.10.2026 👁️ 2
Actress Selma Blair arrested after allegedly attacking attendants on flight
Blair's publicist told the BBC that she "experienced a medical emergency that led to the alleged conduct".
Nemendur koma verr undirbúnir til háskólanáms
📅 12.10.2026 👁️ 2
Nemendur koma verr undirbúnir til háskólanáms
Vinnuhópar hafa verið skipaðir, ræður haldnar, stefnur settar - og árið 2023 beitti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi háskóla-, iðnaðar- og vís...
Abramovich’s close associate misled UK court in £1bn oil-fields case, documents suggest
📅 12.10.2026 👁️ 2
Abramovich’s close associate misled UK court in £1bn oil-fields case, documents suggest
Former Chelsea FC director, Eugene Tenenbaum, helped to manage the oligarch’s wealth.
Tvöhundruð tilkynningar borist vegna minni vatnsþrýstings
📅 12.10.2026 👁️ 2
Tvöhundruð tilkynningar borist vegna minni vatnsþrýstings
Um 200 tilkynningar hafa borist Veitum síðustu daga, ýmist vegna vatnsleysis eða minni þrýstings á vatni. Upplýsingafulltrúi segir slíkum tilkynningum...
Dómurinn segi ekki alla söguna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Dómurinn segi ekki alla söguna - Vísir
„Ég tel að aðgerðir yfirvalda hafi lamað rekstur þeirra fyrirtækja sem um ræðir. Nú er mér gert að sæta þungum viðurlögum vegna vanskila sem ég tel að...
Óánægja vex mest með störf Ingu Sæland
📅 12.10.2026 👁️ 2
Óánægja vex mest með störf Ingu Sæland
Óánægja hefur almennt vaxið með störf formanna ríkisstjórnarflokkanna frá því á síðasta ári. Vanþóknunin hefur vaxið mest í garð Ingu Sæland, formanns...
Stolnu mál­verkin fundust á bak við vegg - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Stolnu mál­verkin fundust á bak við vegg - Vísir
Málverkin tvö heita Portrait de Madame Colonna Romano og Jeune Femme au puits og eru talin vera 4,2 milljóna evra virði eða tæpar sex hundruð milljóni...
Netárás á stórmarkaði hitaði kæla og skemmdi mat
📅 12.10.2026 👁️ 4
Netárás á stórmarkaði hitaði kæla og skemmdi mat
Frönsku stórmarkaðskeðjurnar E. Leclerc, Intermarche og Cooperative U urðu fyrir netárás sem beindist að kælum stórmarkaðanna. Nokkur hundruð matvöruv...
Össur stendur með sundmönnunum - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Össur stendur með sundmönnunum - Vísir
Þetta segir Össur í færslu á Faceboo þar sem hann dregur dár að viðbrögðum við sundferð þingmanna Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku. Málið hefur veri...
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot
📅 12.10.2026 👁️ 4
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot Fréttin12. október 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Emmanuel Macron , forseti Frakklands. „Gleymið Bandar...
Government expands police support to political figures who are not MPs
📅 12.10.2026 👁️ 4
Government expands police support to political figures who are not MPs
Shabana Mahmood says there is "insufficient protection" for those who play a role in public life.
Heimsendauggur á mismunandi tímum
📅 12.10.2026 👁️ 4
Heimsendauggur á mismunandi tímum
Um þessar mundir eru 40 ár liðin síðan Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ræddu umfangsmikla afvopnun á fun...
Andy Burnham to push for new post-Brexit deals at EU summit
📅 12.10.2026 👁️ 2
Andy Burnham to push for new post-Brexit deals at EU summit
Conservative leader Kemi Badenoch said the prime minister was "unpicking" the deal the UK signed with the EU.
Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju
📅 12.10.2026 👁️ 4
Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju
Að minnsta kosti einn var drepinn í norðurhluta Ísraels þegar árás var gerð á rútu með framhaldsskólanemum á skólaferðalagi nærri bænum Maalot-Tarshih...
Stærsti viðskiptaþvinganapakki ESB frá upphafi Úkraínustríðsins
📅 12.10.2026 👁️ 4
Stærsti viðskiptaþvinganapakki ESB frá upphafi Úkraínustríðsins
Evrópusambandið bætti formlega við hátt í 1.600 nýjum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á listann yfir þá sem sæta efnahags- eða viðskiptaþvingu...
Ragnhildur segir meðalmanninn eyða þetta löngum tíma í símann og samfélagsmiðla
📅 12.10.2026 👁️ 4
Ragnhildur segir meðalmanninn eyða þetta löngum tíma í símann og samfélagsmiðla
Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga Nagli, er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reg...
„Þetta er allt of hár dómur“
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Þetta er allt of hár dómur“
„Þetta er allt of hár dómur,“ segir Þorgils Þorgilsson, lögmaður Andra Más Mortensen Birgissonar sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðild ...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Friðurinn er grunnur að hamingjunni – hvað ætlum við Íslendingar að gera?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Friðurinn er grunnur að hamingjunni – hvað ætlum við Íslendingar að gera?
Fjörutíu árum eftir sögulegan fund Reagans og Gorbatsjovs í Höfða stöndum við aftur frammi fyrir heimi þar sem stríð, ótti og vígbúnaður ógna lífi og ...
NATO sendir Pútín skýr skilaboð – „Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur“
📅 12.10.2026 👁️ 4
NATO sendir Pútín skýr skilaboð – „Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur“
Æðsti yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu hefur varað Rússa við því að bandalagið muni svara af fullum þunga ef ráðist verður á ...
Fasteignasali sneri tapi í sigur - Ósannað að hann hafi vitað af myglu í eign sem hann seldi
📅 12.10.2026 👁️ 4
Fasteignasali sneri tapi í sigur - Ósannað að hann hafi vitað af myglu í eign sem hann seldi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fasteignasala, eða nánar til tekið fasteignasölunni sem hann starfar á, í vil í deilumáli við kaupanda fasteignar. ...
Athafnamaður fær tveggja ára dóm og 105 milljóna sekt fyrir skattsvik
📅 12.10.2026 👁️ 4
Athafnamaður fær tveggja ára dóm og 105 milljóna sekt fyrir skattsvik
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot. Þar af er 21 mánuður skilorðsbundi...
Yfir sjö­tíu prósent ó­á­nægja með Ingu Sæ­land - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Yfir sjö­tíu prósent ó­á­nægja með Ingu Sæ­land - Vísir
Í könnun Maskínu var spurt hversu vel eða illa formenn stjórnmálaflokka á Alþingi hafa staðið sig á kjörtímabilinu. Könnunin var gerð frá 2. til 7. ok...
„Við teljum okkur svikin og erum vonsvikin með það“
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Við teljum okkur svikin og erum vonsvikin með það“
Formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar segja innviðaráðherra hafa grafið undan trausti þegar línuívilnun og rækju- og skelbætur voru skornar niður í ...
Hútar ráðast áfram á Sádi-Arabíu – flugvellinum í Riyadh lokað fram eftir vikunni
📅 12.10.2026 👁️ 4
Hútar ráðast áfram á Sádi-Arabíu – flugvellinum í Riyadh lokað fram eftir vikunni
Skæruliðasveitir Húta í Jemen héldu eldflaugaárásum á Sádi-Arabíu áfram í gærkvöld og nótt. Árás var gerð á eina af flugstöðvum alþjóðaflugvallarins í...
On Yemen's desert battlefield, a war with global consequences is being waged
📅 12.10.2026 👁️ 4
On Yemen's desert battlefield, a war with global consequences is being waged
Yemen's entrenched civil war is now impossible to ignore. But in operating rooms in its port city of Aden, geopolitics feels remote.
Leita enn að einum eftir al­var­lega líkams­á­rás - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Leita enn að einum eftir al­var­lega líkams­á­rás - Vísir
Þetta staðfestir Stefán Sveinsson, aðstoðyfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurnesjum en Rúv greindi fyrst frá. Fimm eru grunaðir um aðild að líkam...
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir
Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa uppfært veiðiráðgjöf fyrir loðnuvertíð vetursins. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti 358...
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á
Djúp lægð stefnir á landið og má búast við hvassviðri og úrkomu á miðvikudag. Versta veðrið verður á norðvestanverðu landinu. Garðar Valur Gíslason er...
15-year-old girl rescued after falling into ravine in Tenerife
📅 12.10.2026 👁️ 4
15-year-old girl rescued after falling into ravine in Tenerife
A 15-year-old girl has been rescued by firefighters after falling into a ravine in Güímar, Tenerife, during the early hours of this morning (Monday).T...