Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir hafa verið fyrirséð að verðbólgan yrði á svipuðum slóðum í ágúst og hún hefur verið síðustu mánuði.
Verðbólgan er 5,6% og jókst um 0,2% milli mánaða. Forsenduákvæði kjarasamninga kveður á um að segja megi samningum upp ef verðbólga er yfir 4,7% í ágúst.
Miðað við það eru forsendur kjarasamninganna brostnar en forsendunefnd þarf að gefa það formlega út. „Sú nefnd kemur saman á mánudaginn og þá munum við ákveða viðbrögð við því,“ segir Finnbjörn.
Verkalýðshreyfingin, hið opinbera og Samtök atvinnulífsins hafa til 8. október til að ná saman og bregðast við forsendubrestinum.
„Í sjálfu sér þurfum við ekkert að nýta allan þann tíma. Við erum náttúrlega búin að vera í viðræðum – bæði við Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld frá því snemma í sumar, því það var ljóst að það stefndi í þetta.“
Ekki fyrsti kostur að segja upp kjarasamningum
Finnbjörn segir að það sé ekki fyrsti kostur verkalýðshreyfingarinnar að segja upp samningunum. „En það er alveg ljóst að við munum ekki ein sitja hjá og aðrir velta öllu af sér yfir í verðlag – þannig að það er almenningur sem borgar þeirra hluta verðbólgunnar líka.“
Ósk hreyfingarinnar er að SA, sveitarfélög og ríkið finni sameiginlega lausn til að ná niður verðbólgu.
„Þá þurfum við raunveruleg loforð frá þeim. Ekki bara einhver vilyrði og „leitast skal við“ og „af fremsta megni“ eins og þau virðast hafa haldið að síðasta loforð var.“