Stuðningur Bretlands við Úkraínu breytist ekki þrátt fyrir sviptingar í breskum stjórnmálum, að sögn Andys Burhams, forsætisráðherra Bretlands. Hann fundaði með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta í flotastöð í Portsmouth í Bretlandi í dag.
„Við skynjum óréttlætið sem þið hafið orðið fyrir. Það er skylda okkar að standa með og styðja ykkur,“ sagði Burnham.
Zelensky er fyrsti erlendi þjóðarleiðtoginn sem Burnham tekur á móti síðan hann tók við embætti forsætisráðherra í síðustu viku. Burnham hét því að heiðra að öllu leyti skuldbindingar Breta gagnvart Úkraínumönnum. Bretar ætla að afhenda Úkraínuher tæknilausnir sem gerir þeim kleift að trufla rússneska loftvarnarkerfið og koma í veg fyrir að það greini dróna.