Íbúar landsbyggðarinnar segja margir að vegið sé að byggðum fjarri borginni með síhækkandi ferðakostnaði, breytingum á loftbrú, kílómetragjaldi og hækkandi eldsneytisverði.
Fréttastofa skoðaði nokkur dæmi um hvað slíkar ferðir gætu kostað. Í dæmunum er reiknað með loftbrúarafslætti, sem íbúar landsbyggðarinnar geta notað fyrir sex flugleggi á ári.
Ekki gleyma bensíni, kílómetragjaldi og veggjöldum
Svo þarf reyndar líka að reikna með eldsneyti í akstri til Akureyrarog gjaldi í gegnum Vaðlaheiðargöng. Ef við reiknum með að fjölskyldan sé ekki með áskrift í göngin kostar 4.432 krónur fyrir báðar leiðir. Og svo gætu bæst við um 3.500 krónur í viðbót bílastæðagjöld á Akureyrarflugvelli.
Svo gæti það farið svo að fjölskyldan væri búin að fullnýta loftbrúnna þetta árið - og fengi þá engan afslátt af fargjöldum. En miðað við þetta dæmi, fæst besta verðið með 40% afslætti.
Bensínbíllinn töluvert hagstæðari en Strætó
Ef þau keyra alla leið á bensínbíl kostar ferðin núna 23.094 krónur, með kílómetragjaldi.
Svo stendur til að hækka það um áramót, þá hækkar ferðin um rúman þúsund kall og færi þá upp í 24.161 krónur.
Annar kostur er svo Strætó, en sú ferð tekur með stoppi á Akureyri tæplega 14 klukkutíma. Fyrir einn fullorðinn, aðra leið, kostar sú ferð 16.890 krónur. Það myndi því kosta yfir 67.000 krónur fyrir tvo fullorðna báðar leiðir.
Skoðum annað dæmi.
Hornafjarðarfljót og kílómetragjald hækkar verðið fyrir akandi
Ef Hornfirðingurinn ætlar á milli á dísilbíl, myndi það kosta 22.850 með kílómetragjaldi eins og það er núna.
Hver ferð yfir Hornafjarðarfljót kostar svo 1.500 krónur, þannig að við reiknum með auka 3.000 krónum í ferðalagið. Heildarkostnaður við aksturinn = 25.850 krónur.
Strætóferðin frá Höfn til Reykjavíkur tæki sjö klukkutíma - og ferðin fram og til baka kostar einn fullorðinn 34.800 krónur.
Ferðalögin hlaupa á hundruðum þúsunda á ári
Af þessum tölum má sjá að ferðir fjölskyldna á landsbyggðinni til Reykjavíkur, nokkrum sinnum á ári til þess að sækja þjónustu, geta leikandi hlaupið á hundruðum þúsunda á ári. Þessi tvö dæmi hér á undan gefa einhverja mynd af því hvað ferðalög sem þessi geta kostað.
Utan við þessa tvo staði sem hér eru nefndir er einnig innanlandsflug frá Ísafirði, Bíldudal, Gjögri, Vestmannaeyjum, Grímsey, Þórshöfn og Vopnafirði. Aðrir þurfa að greiða fyrir ferjusiglingar og hluti landsmanna hefur ekki aðgang að almenningssamgöngum sem eru nefndar í dæminu hér á undan. Verðið getur verið mjög misjafnt milli staða.