Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir fleiri uppsagnir ekki á dagskrá innan borgarkerfisins.
„Næstu aðgerðir hagræðingarhóps munu snúa að því að rýna hjá okkur eignasafnið, innkaupamálin og veikindahlutföll borgarstarfsmanna sem eru gríðarhá og kosta okkur 6–7 milljarða á ári hverju,“ segir hún.
Borgarstjórn ákvað að segja upp 50 manns í dag. Stöðugildum er fækkað um 74 á fimm sviðum borgarinnar. Þetta er þriðja lota uppsagna nýs meirihluta í miðlægri stjórnsýslu. Samtals hefur stöðugildum verið fækkað um 130.
Hildur telur sig geta fullyrt að uppsagnirnar eigi ekki að hafa áhrif á þjónustu við borgara.
„Miðlæga kerfið og yfirbyggingin þurfa að aðlagast fækkun starfsmanna en borgararnir eiga ekki að þurfa að finna fyrir þessu.“
Aðgerðirnar í dag eiga að skila um 1,3 milljarða hagræðingu árlega. Með fyrri hagræðingu er talið að upphæðin nemi 2,3 milljörðum króna á ári.
„Við höfum líka sagt upp leigusamningum – við erum að komast upp í 2,5 milljarða í hagræðingu það sem af er kjörtímabili,“ segir Hildur.