Kjörsókn hefur aldrei verið meiri en á fyrri helmingi þessa kjördags. Ísraelar kjósa sér nýtt þing í dag og þjóðin er klofin í afstöðu sinni til forsætisráðherrans.
Benjamín Netanjahú, oft kallaður Bibi í Ísrael, hefur verið forsætisráðherra í 19 ár – þó með hléum.
„Ég hef aldrei kosin neinn annan en Bibi Netanjahú og fyrir mér er hann bestur í heimi,“ segir kjósandi í Tel Aviv.
Minni flokkar gætu ráðið miklu
Annar kjósandi í Tel Aviv segir: „Við verðum að losa okkur við hann því hann rústar Ísrael.“ Sá styður keppinaut Netanjahús, Gadi Eisenkot.
Eisenkot hefur örlítið forskot samkvæmt skoðanakönnunum en hvorug blokkin nær hreinum meirihluta. Því þarf að treysta á aðra flokka til að mynda stjórn.
Það eru 120 sæti á ísraelska þinginu. Til þess að ná inn á þing þarf að fá 3,25% fylgi. Ef flokkur nær því þá fær hann fjögur þingsæti. Litlir flokkar geta því skipt sköpum í að mynda ríkisstjórn.
Hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael þann 7. október 2023 hefur breytt miklu. Ísraelska vinstrið er nánast horfið og samfélagið virðast færast sífellt lengra til hægri.
Áhuginn er greinilega mikill í Ísrael. Klukkan 14 að ísraelskum tíma höfðu 3,29 milljónir greitt atkvæði, það eru um 44,9% kjósenda. Þá var klukkan tólf á hádegi hér á Íslandi.
Að sögn Dean Livne, formanns kjörstjórnarinnar, er þetta mesta kjörsókn sem mælst hefur frá því að byrjað var að halda utan þær upplýsingar árið 1973.
Kjörstöðum verður lokað klukkan tíu í kvöld að staðartíma, sem er klukkan átta að okkar tíma. Þá verða fyrstu útgönguspár birtar og upp úr því fara fyrstu tölur að rúlla inn. Líklega verður myndin orðin nokkuð skýr á morgun.