Snorri Másson, þingmaður og varaformaður Miðflokksins, segir að myndavélar, öryggishlið í skólum og öryggisgler í strætó muni ekki leysa öryggisvandann sem nú blasir við á höfuðborgarsvæðinu. Rót vandans sé innflytjendastefna síðustu áratuga og nær væri að loka landamærunum en skólunum.
Þetta segir Snorri í myndbandi sem hann birti á Facebook á mánudag. Þar bregst hann við fréttum síðustu vikna af ofbeldi í grunnskólum Reykjavíkur og í Mjódd.
„Er það ekki alveg nýtt í okkar samfélagi að við séum að velta fyrir okkur öryggisráðstöfunum í skólum? Ég man persónulega ekki eftir því,“ segir Snorri.
„Umræðu lokið“
Snorri segir að í fréttum af þessu tagi sé yfirleitt látið nægja að segja að samfélagið hafi breyst, án þess að nokkur spyrji hvernig það gerðist.
„Getur hugsast að hér spili inn í hin glórulausa innflytjendastefna undanfarinna áratuga? Eða eigum við bara að láta þar við sitja: Samfélagið er breytt, við búum við breytt samfélag, umræðu lokið,“ spyr hann.
Hann segir engum greiða gerðan með þögninni: „Ég er ekki viss um að það leysi nokkurn vanda eða að það hjálpi nokkrum manni ef að fólk er að reyna að vera voðalega gott, að segja ekki allan sannleikann um málið, að ræða ekki vandann eða stinga hausnum í sandinn.“
Snorri fullyrðir að þeir sem starfa í skólakerfinu og horfi raunsætt á málin muni staðfesta að „töluverður hluti af þessari nýju tegund af áskorunum, meðal annars ofbeldismálum sem skólakerfið er að glíma við, er vegna innflytjendahópa sem hafa aðlagast samfélaginu hér mjög illa eða ekki neitt.“
Áverkar í 55 atvikum
Öryggi í skólum hefur verið mikið til umræðu síðustu vikur. Vísir greindi frá því 14. október að fólk hefði farið inn í skóla í Reykjavík og veist að nemendum eða starfsfólki, og Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, sagði kennara óttast um öryggi sitt og að sums staðar væri kennslustofum læst í kennslustundum.
Í borgarstjórn sagði Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, frá kennara sem væri í legghlífum í vinnunni vegna sparka. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri greindi þá frá verkefninu „Einn inngangur“.
Samkvæmt svörum borgarinnar til Vísis hafa 77 atvik verið skráð í grunnskólum Reykjavíkur frá því í febrúar og í 55 þeirra hlaut starfsfólk áverka.
Snorri tók málið einnig upp á Alþingi 19. október og spurði þar hvort kjarni vandans væri ekki „þessi ósjálfbæra innflytjendastefna, frekar en að fara í sífellt fleiri plástra og frekari öryggisráðstafanir“. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra sagði stöðuna í öryggismálum skóla grafalvarlega.
Skúmaskotum fækkað í Mjódd
Í myndbandinu nefnir Snorri einnig Mjódd, þar sem hann segir öryggisástandið hafa verið mjög alvarlegt mjög lengi. Þar á meðal annars að bæta lýsingu, fjölga eftirlitsmyndavélum og fækka skúmaskotum þar sem hægt er að fela sig.
Í maí réðust sex ungmenni á aldrinum fjórtán til sextán ára á konu við biðskýli í Mjódd, og Strætó hætti öryggisgæslu á stöðinni í júní í fyrra.
„Fækka skúmaskotum til að draga úr ofbeldi í Mjóddinni á strætóstoppistöðinni,“ segir Snorri og bætir við að setja eigi öryggisgler í strætó. „Og þetta á að leysa vandann.“
Hann segir rót vandans og „rót öryggisleysisins“ vera opnu landamærin. „Það er ekki að fara að lagast með sífellt fleiri fjölmenningarplástrum eins og þetta eru.“
Í færslunni með myndbandinu kallar Snorri eftir hreinskiptinni umræðu um rót vandans, sem liggi „að verulegu leyti í vanhugsaðri landamærastefnu síðustu áratuga“.
Hann lýkur myndbandinu á þessum orðum: „Okkur væri með öðrum orðum nær mögulega að loka landamærunum en ekki skólunum.“