Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar verður sagt upp í hagræðingaraðgerðum sem voru til umræðu á lokuðum fundi í borgarstjórn í morgun. Uppsagnirnar ná til allra sviða nema skóla- og velferðarsviða. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Borgarstjórn kom saman á lokuðum fundi í morgun og er efni hans trúnaðarmál. Fundinum lauk upp úr klukkan tíu í morgun.
Borgarfulltrúar sem fréttastofa ræddi við að fundi loknum sögðust ekkert geta tjáð sig um efni fundarins vegna trúnaðar.
„Við getum ekkert tjáð okkur núna,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún boðaði frekari upplýsingar síðar í dag.
Hildur og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, verða gestir Bergsteins Sigurðssonar í Kastljósi í kvöld.
„Það var aðeins tekist á,“ sagði Pétur um fundinn.
„Það er óheimilt,“ sagði Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, aðspurður hvað hann gæti sagt um efni fundarins, en bætti svo við „...en það hefur komið fram áður að Miðflokkurinn styður nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir í rekstri borgarinnar enda hefur rekstur borgarinnar ekki verið sjálfbær og verið haldið uppi með einskiptisaðgerðum eins og sölu lóða á okurverði sem getur ekki staðið undir almennum rekstri borgarinnar. Hann þarf að vera í jafnvægi.“
Hann sagðist þó ekki vera með þessu að staðfesta að hagræðing og uppsagnir hefðu verið rædd en sagði að umræðan hefði snúist um rekstur borgarinnar.
„Það er auðvitað alltaf erfitt að skera niður og það er mikil glíma við rekstrarleg viðfangsefni en það er nauðsynlegt verkefni og stjórnendur geta ekki vikið sér undan því.“
Fréttin hefur verið uppfærð.