„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ - Vísir

„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ - Vísir

„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ - Vísir

Lúðvík Pétursson lést þegar hann féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Fjölskylda Lúðvíks situr enn uppi með ótal spurningar en lítið er um svör.

Sjá einnig: Hefja leit að Lúð­vík í fyrra­málið

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum stjórnar aðgerðunum í Grindavík. Í fréttatilkynningu þess efnis frá embættinu í gær segir að viðbragðsaðilar og sérfræðingar hafi verið við vinnu í gær til að huga að öryggi og setja upp vinnusvæði vegna leitarinnar, sem stefnt er að að hefjist um klukkan níu við Vesturhóp 29.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ber ábyrgð á leitaraðgerðinni og er unnið á grunni áhættumatsvinnu. Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, segir í færslu á Facebook fyrir nokkrum dögum að fjölskyldan sé þakklát þeim sem hafi lagt sitt af mörkum og þeim sem síga munu niður. Hvað leitina varðar gangi fjölskyldunni það eitt til að fá að kveðja Lúðvík við útför og ljúka með því einum þætti þessa sorglega máls. Hann gagnrýnir þó nokkuð harðlega hversu langan tíma hefur tekið að komast á þennan stað en stuttan til að senda Lúðvík, eða Lúlla eins og hann kallar hann, í vinnu á sprungusvæðinu.

„Það þurfti áhættumat, mat erlendra sérfræðinga og mótvægisaðgerðir áður en óhætt þótti að senda nokkurn mann niður í sprunguna. Það er rétt og eðlilegt að fara varlega. Þegar Lúlli og vinnufélagi hans voru settir til verka í bakgarði í Grindavík við að fylla undir hús í janúar 2024 var engu slíku til að dreifa. Veðurstofan hafði varað sérstaklega við sprunguhreyfingum, en ekkert mat lá fyrir á hættunni sem fylgdi því verkefni sem þeim var falið að vinna á skilgreindu hættusvæði í miðjum jarðhræringum, né á því hvort verkið væri yfirhöfuð áhættunnar virði,“ segir hann í færslunni og það sé sárast hversu óþarft þetta var.

„Lúlli dó ekki vegna óviðráðanlegra náttúruafla, heldur vegna ákvarðana sem voru teknar og ákvarðana sem ekki voru teknar en hefðu betur verið teknar.“

Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagðist upplifa blendnar tilfinningar í dag. Hann voni að hann finnist og hann sé feginn að það sé loks verið að leita.

Lúðvík var fengið það verkefni að fylla upp í sprungur í Grindavík. Það hafi verið búið að hrynja undir húsi sem hann vann við, búið að dæma það altjónað og það veki því spurningar um verkefnið.

Húsið og sprungan sem Lúðvík Pétursson lést við. Vísir/Vilhelm

„Þarna er fullt af spurningum ósvarað,“ segir Elías og að kerfið hafi ekki viljað skoða þessar spurningar.

Elías vill ekki vera með getgátur um það hvers vegna það hefur tekið svo langan tíma að fara í þessa leit. Hann segist hafa upplifað það þannig að „kerfið sé að verja sig“ og að það geti ekki tekist á við svona mál.

„Ef það er eitthvað sem við eigum að gera þá er það að takast á við svona mál, læra af þeim og gera þetta betur næst.“

Tafir við leitina

Hann segir ýmis svör hvað varðar tafir á leit og það varði það að þau vilji fara varlega. Hann gerir ekki athugasemdir við það en bendir aftur á hversu öfugsnúið það er hversu fljótt var ákveðið að fara í verkefnið miðað við hversu langan tíma það hefur tekið að skipuleggja leitina.

Hann segir fjölskylduna aldrei hafa óskað þess að fólk myndi leggja sig í hættu við leitina. Þau hafi gert kröfu um að andlát hans og aðdragandi þess yrði rannsakaður svo að hægt yrði að koma í veg fyrir að slíkt gerðist aftur.

„Við óskuðum eftir því að það yrði allt gert sem í mannlegu valdi stæði til þess að endurheimta líkamsleifar Lúlla,“ segir hann. Hann segir lögreglu hafa lofað að halda fjölskyldunni upplýstri í dag en veit ekki hvort það verður staðið við það.

Hann segir ekki hægt að gera upp svona áfall fyrr en því er lokið. Hann segir þau ekki fyrsta fólkið sem lendir í svona áfalli og bendir til dæmis á að íbúar í Súðavík hafi þurft að bíða áratugum saman eftir rannsókn og uppgjöri.

„Við erum ekkert ein um að lenda í svona,“ segir hann og að það hafi komið sér á óvart hversu lítið er búið að læra um það hvernig eigi að bregðast við þegar fólk lendir í svona áfalli.

Rannsókn og leit

Elías segir málið í raun í tvennu lagi. Það sé rannsókn og svo leitin. Fjölskyldan hafi strax og það lá fyrir hvernig fór fyrir Lúðvíki óskað eftir því að málið yrði rannsakað, hvernig kerfið virkaði og hvort að fólkið í kerfinu brygðist við eða tók ákvörðun sem ekki var í lagi eða í samræmi við ábyrgð.

„Þeir sem ráða sig í ábyrgðarstöður verða að þola það að það séu skoðuð þeirra störf,“ segir hann.

Hann segir dómsmálaráðuneytið hafa hafið rannsókn og sú rannsókn hafi verið þeim vonbrigði því ráðuneytið þrengdi umboð starfshópsins sem gerði það að verkum að hann gat ekki gert eins heildstæða rannsókn og þau hefðu óskað eftir. Til dæmis hafi Náttúruhamfaratryggingar Íslands ekki verið rannsakaðar og að þeirra mati sé hún viðbragðsaðili. Þeirra hlutverk sé að fara inn á hamfarasvæði og lágmarka tjón á eignum.

„En þeir eru teknir út úr sviga á þeim grundvelli að þeir séu ekki viðbragðsaðilar.“

Hann segir þetta flókið lögfræðilegt og stjórnsýslulegt mál, hvernig eigi að skilgreina málið, og það sé ekki endilega á færi fjölskyldunnar að gera umsögn um það. Því hafi þau fengið lögfræðing til að skrifa fyrir þeirra hönd umsögn um skýrsluna. Það hafi haft sáralítil áhrif.

„Ef þú skoðar ekki ákvarðanir sem eru teknar í aðdraganda einhvers er augljóst að það er ekki hægt að ákvarða af hverju eitthvað gerðist.“ 

Í skýrslunni sé það metið sem gerðist eftir á og það komi ýmislegt áhugavert í ljós, eins og að það vissi enginn hver réð á leitarsvæðinu, það hafi ekki legið fyrir hver gaf heimild fyrir framkvæmdunum og á þessum tíma hafi staðan í Grindavík verið þannig að fólk hafi verið þar á eigin ábyrgð.

„Það var ákveðið stjórnleysi á svæðinu á þessum tíma,“ segir hann.

Starfshópurinn skilaði um 400 blaðsíðna skýrslu um málið og ráðuneytið birti hana síðdegis samdægurs, í aðdraganda langrar helgar. Elías telur að með því að birta hana á þessum tíma hafi ekki verið verið að hvetja til almennrar umræðu og að hann hafi með því verið að „verja sig“.

Elías segist hafa óskað eftir skýringum á því hvers vegna starfssvið starfshópsins hafi verið þrengt og hann hafi kallað eftir gögnum hvað það varðar.

„Eina leiðin til að klára svona mál er að setja allt upp á borðið.“

Elías segir mikilvægt að málinu verði lokið og það sé ósk fjölskyldunnar að geta fengið einhverja lúkningu með því að líkamsleifar Lúðvíks verði fundnar og þau fái, til dæmis að halda jarðarför.

„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann,“ segir hann og að jarðarför sé fyrir flesta mikilvægur hluti sorgarferlisins.

„Að vita af Lúlla í einhverjum malarhaug í einhverri sprungu er ekki mjög auðvelt að sætta sig við, það er eiginlega ómögulegt.“

Engin trygging fyrir jafnræði

Elías segir það sorglegan hluta af þessu máli að það sé engin trygging í stjórnsýslunni fyrir jafnræði. Það sé einn angi málsins sem sé sorglegt að uppgötva. Stjórnsýslan eigi að vera hlutlaus en innan hennar vinni fólk sem sé mannlegt. Það geri sitt besta í þeirri aðstöðu sem það er í en hann veltir því fyrir sér hvort að kerfið, sem fólkið er búið að búa til, sé nógu gott.

Farið verður niður í sprunguna um klukkan níu í dag og gerð sjónskoðun. Elías vonar að hann fái fréttir um klukkan 11. Hann gerir ráð fyrir því að það taki daginn að skoða svæðið og í dag sé aðeins fyrsti fasi. Næsti fasi byggi á því hvað þau sjái í dag og það verði gert mat á því hvort hægt sé að fara niður til að grafa. Hann segir að í minnisblaði COWI hafi verið lagt til að farið yrði niður með einhver tæki og tól sem notuð eru í rústabjörgun.

#finnist #lík #lúlla #okkar #von


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262954104d/-von-okkar-er-ad-lik-lulla-finnist-og-vid-getum-jardad-hann-

📰 Aðrar fréttir

Maðurinn sem getur fellt Netanjahú er enginn friðarsinni
📅 27.10.2026 👁️ 1
Maðurinn sem getur fellt Netanjahú er enginn friðarsinni
Maðurinn sem getur fellt Netanjahú er enginn friðarsinni Fyrr­ver­andi hers­höfð­ing­inn Gadi Eisenkot sæk­ist eftir stuðn­ingi kjós­enda sem vilja br...
Two men charged under National Security Act after RAF Fairford incident
📅 27.10.2026 👁️ 1
Two men charged under National Security Act after RAF Fairford incident
Two men have been charged with national security offences after an incident near RAF Fairford last month, the Crown Prosecution Service has said.
Fjöru­tíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 1
Fjöru­tíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins - Vísir
Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra í gær kom fram að flestar verkbeiðnir hafi tengst einstaklingum í ólögmætri dvöl, alls 117 mál, sem svar...
Hefur misst 45 kíló - „Ég var mjög efins til að byrja með“
📅 27.10.2026 👁️ 2
Hefur misst 45 kíló - „Ég var mjög efins til að byrja með“
Leikkonan Chrissy Metz mætti glæsileg að venju á frumsýningu Nocturne. Hún klæddist grænum flauelskjól en það sem hefur vakið mesta athygli er þyngdar...
Fóðruðu lofts­lags­vá að­eins minna en met­árið á undan - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Fóðruðu lofts­lags­vá að­eins minna en met­árið á undan - Vísir
Árið 2024 lögðust stórfelld losun manna á gróðurhúsalofttegundum og ákafir gróðureldar, sem hnattræn hlýnun hefur bein áhrif á, á eitt um að valda mes...
Auka­fundur borgar­full­trúa: Rætt um frekari hag­ræðingar - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Auka­fundur borgar­full­trúa: Rætt um frekari hag­ræðingar - Vísir
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Samkvæmt heimildum fréttastofu er umfjöllunarefni fundarins hagræðingaraðgerðir og uppsagnir starfsfólks. Hátt í tutt...
Magnea telur að það ætti að ákæra Elliða: „Af hverju á maður að komast upp með svona?“
📅 27.10.2026 👁️ 1
Magnea telur að það ætti að ákæra Elliða: „Af hverju á maður að komast upp með svona?“
„Þetta er sakhæft athæfi,“ segir Magnea Marínósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, telur hún að ríkissaksóknari ætti að ákæra Elliða Vignisson bæjarstj...
Um þetta er kosið í Ísrael
📅 27.10.2026 👁️ 1
Um þetta er kosið í Ísrael
Um þetta er kosið í Ísrael Kosn­inga­bar­áttan snýst meðal ann­ars um hvort rann­saka eigi ábyrgð á því að árás Hamas 7. októ­ber 2023 tókst, und­an­þ...
Fundað um trúnaðarmál í Ráðhúsi Reykjavíkur
📅 27.10.2026 👁️ 2
Fundað um trúnaðarmál í Ráðhúsi Reykjavíkur
Lokaður borgarstjórnarfundur hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan átta í morgun. Erfiðlega hefur gengið að ná tali af kjörnum fulltrúum í morgun. Efni ...
Segir nýja bók Truss þá rugluðustu sem hann hafi lesið
📅 27.10.2026 👁️ 1
Segir nýja bók Truss þá rugluðustu sem hann hafi lesið
Segir nýja bók Truss þá rugluðustu sem hann hafi lesið Gagn­rýn­andi Tel­egraph fer hörðum orðum um nýja bók fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­l...
Skoða sölu á Ljósleiðaranum
📅 27.10.2026 👁️ 2
Skoða sölu á Ljósleiðaranum
Leyfi til að selja Ljósleiðarann að hluta eða öllu leyti eða skrá fyrirtækið á markað var veitt á hluthafafundi fyrirtækisins í gær. Það var veitt með...
Nýfæddi sonurinn sá sjöundi í systkinahópnum
📅 27.10.2026 👁️ 2
Nýfæddi sonurinn sá sjöundi í systkinahópnum
Hjónin Fanney Sandra Albertsdóttir, förðunarfræðingur og einkaþjálfari, og Garðar Gunnlaugsson, knattspyrnumaður, eignuðust son þann 10. október.„Hall...
Segja langvinna sjúkdóma líkt og ME og langvinnt COVID-10 vanrannsakaða
📅 27.10.2026 👁️ 2
Segja langvinna sjúkdóma líkt og ME og langvinnt COVID-10 vanrannsakaða
Þjónusta við sjúklinga með ME, langvinnt COVID-19, umhverfisveikindi, POTS og skylda sjúkdóma er í engu samræmi við alvarleika sjúkdómsins, stórefla þ...
14-villa holiday complex approved in Costa Teguise
📅 27.10.2026 👁️ 2
14-villa holiday complex approved in Costa Teguise
Plans for a new exclusive holiday complex with 14 villas in Costa Teguise have received provisional approval from the Lanzarote Cabildo.The developmen...
Blautur dagur í flestum lands­hlutum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Blautur dagur í flestum lands­hlutum - Vísir
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að sums staðar megi búast við slyddu en líklega rigningu undir tvö hundruð...
Starfsfólk sofandi á meðan barnið fór út um svaladyrnar
📅 27.10.2026 👁️ 2
Starfsfólk sofandi á meðan barnið fór út um svaladyrnar
Sum börn með fjölþættan vanda dvelja árum saman í einkareknum búsetuúrræðum. Aðstandendur og fyrrverandi starfsmenn lýsa brotalömum bæði í öryggi barn...
Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 - Vísir
Bandaríski rapparinn staðfestir þetta í yfirlýsingu en orðrómur þessa efnis hefur verið á kreiki í nokkra daga. Ofurskálin fer fram 14. febrúar næstko...
'A dream come true' - Harry Kane on his Ballon d'Or win
📅 27.10.2026 👁️ 2
'A dream come true' - Harry Kane on his Ballon d'Or win
It's the first time an English player has lifted the trophy since Michael Owen in 2001.
24-year-old man hospitalised after being rescued from the sea in south Tenerife
📅 27.10.2026 👁️ 2
24-year-old man hospitalised after being rescued from the sea in south Tenerife
A 24-year-old man was taken to hospital yesterday afternoon, Monday 26th October, after being rescued from the sea at Playa de Las Burras, by Las Gall...
Major Chinese brands drop Mbappé as backlash grows over Mao joke
📅 27.10.2026 👁️ 1
Major Chinese brands drop Mbappé as backlash grows over Mao joke
He allegedly said his "favourite meme" is "the one where they put my face on a Chinese dictator".
Afganar sjö sinnum oftar sakfelldir fyrir kynferðisbrot en Bretar
📅 27.10.2026 👁️ 1
Afganar sjö sinnum oftar sakfelldir fyrir kynferðisbrot en Bretar
Afganar í Englandi og Wales eru sakfelldir fyrir kynferðisbrot sjö sinnum oftar en Bretar, samkvæmt nýrri greiningu The Economist. Nick Timothy, skugg...
Í dag er það blautt
📅 27.10.2026 👁️ 2
Í dag er það blautt
Hvasst og blautt gætu verið einkunnarorð veðurs dagsins. Norðaustanátt blæs á landsmenn. Hvassast verður norðvestan til og austan Öræfa þar sem vindur...
Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síð­degis? - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 1
Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síð­degis? - Vísir
Meira að segja megrunin hefur gengið ágætlega í dag og það sem fyrirhugað er í kvöldmat er ágætlega hollt og gott. Áður en þú veist af er samt komið s...
Úlfurinn át þá alla - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Úlfurinn át þá alla - Vísir
En í þetta sinn hafði hann annað í hyggju. Fyrir framan hann voru um fimm þúsund kiðlingar og hann ætlaði að éta þá alla. Það þurfti ekki einu sinni a...
Notendur þyngdarstjórnunarlyfja glíma helst við skort á þessum næringarefnum
📅 27.10.2026 👁️ 1
Notendur þyngdarstjórnunarlyfja glíma helst við skort á þessum næringarefnum
Þyngdarstjórnunarlyf njóta mikilla vinsælda og þá einkum lyf á borð við Ozempic og Wegovy sem kallast GLP-1-lyf. Notendur þessara lyfja glíma gjarnan ...
Biður ríkisstjórnina um að banna rússneskum skíðamönnum að koma til Noregs
📅 27.10.2026 👁️ 2
Biður ríkisstjórnina um að banna rússneskum skíðamönnum að koma til Noregs
Borgarstjóri Osló hefur farið fram á það að ríkisstjórn Noregs veiti rússneskum keppendum ekki vegabréfsáritun vegna keppni sem á að fara fram í vetur...
Sjö ára barátta fyrir dómi eftir bílslys: „Þetta skiptir líka held ég máli fyrir alla námsmenn“
📅 27.10.2026 👁️ 2
Sjö ára barátta fyrir dómi eftir bílslys: „Þetta skiptir líka held ég máli fyrir alla námsmenn“
„Svo vaknaði ég þarna um morguninn, með öll fjögur börnin í kringum mig, og ég hugsaði: En hvað ef þau lenda í slysi, eftir einhver ár, sem námsmenn? ...
Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
📅 27.10.2026 👁️ 2
Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. H...
Kjörstaðir opnir í Ísrael - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Kjörstaðir opnir í Ísrael - Vísir
Á sama tíma er talið ólíklegt að stjórnarandstöðuflokkar, með Gadi Eisenkot í broddi fylkingar, nái því 61 þingsæti sem þarf til að ná meirihluta og m...
Ó­ljóst hver mun leiða ríkis­stjórn Stúdenta í Serbíu - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Ó­ljóst hver mun leiða ríkis­stjórn Stúdenta í Serbíu - Vísir
Kosningar fóru fram um helgina og viðurkenndi Aleksandar Vučić, formaður stjórnarflokks Serbíu, ósigur sinn í kosningunum seint á sunnudag. Serbneski ...
TUESDAY WEATHER: Intense haze as calima continues across the Canary Islands
📅 27.10.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Intense haze as calima continues across the Canary Islands
Temperatures will reach or exceed 30°C across the Canary Islands today, Tuesday 27th October, as haze will cover much of the archipelago from the cali...
Mengun af völdum skógarelda ógnar heilsu íbúa á Borneó
📅 27.10.2026 👁️ 1
Mengun af völdum skógarelda ógnar heilsu íbúa á Borneó
Yfir 300.000 hafa greinst með öndunarfærasýkingu á indónesíska hluta Borneó frá því í ágúst vegna mengunar af völdum skógarelda og móðu.Indónesíska he...
Stakk af frá far­gjaldi leigu­bíls - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Stakk af frá far­gjaldi leigu­bíls - Vísir
Í dagbók kemur einnig fram að lögregla hafi sinnt fjölda verkefna vegna aksturslagabrota. Einn var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum auk ...
Hyggjast tilnefna Viktor Orban sem aðalritara Sameinuðu þjóðanna
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hyggjast tilnefna Viktor Orban sem aðalritara Sameinuðu þjóðanna
Donald Trump vill að Viktor Orban, fyrrverandi forseti Ungverjalands, verði næsti aðalræðismaður Sameinuðu þjóðanna. Undirsátar hans í Hvíta húsinu vi...
Israel heads to polls for pivotal election defined by security and democracy
📅 27.10.2026 👁️ 3
Israel heads to polls for pivotal election defined by security and democracy
Many fear neither of the leading political blocs will win enough seats for a majority - meaning weeks or months of political wrangling may lie ahead.
Sharp rise in sales of essential goods after government says to stock up
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sharp rise in sales of essential goods after government says to stock up
Figures obtained by BBC Newsnight show large spikes in sales of torches, radios and power banks.
Rise in sales of radios and tinned foods, say retailers, after call to stock up
📅 27.10.2026 👁️ 2
Rise in sales of radios and tinned foods, say retailers, after call to stock up
Figures obtained by BBC Newsnight show large spikes in sales of torches, radios and power banks.
Vopnahlé í Oleshky tók gildi í nótt
📅 27.10.2026 👁️ 3
Vopnahlé í Oleshky tók gildi í nótt
Vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna í Oleshky tók gildi klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Al Jazeera hefur þessar upplýsingar eftir rússneska va...
Truce begins in Ukrainian city of Oleshky after it was announced by Melania Trump
📅 27.10.2026 👁️ 3
Truce begins in Ukrainian city of Oleshky after it was announced by Melania Trump
The ceasefire is meant to allow aid deliveries and the evacuation of civilians.
Truce begins in Ukraine city where residents ate weeds to survive
📅 27.10.2026 👁️ 2
Truce begins in Ukraine city where residents ate weeds to survive
The ceasefire in Oleshky, announced by US First Lady Melania Trump, is meant to allow aid deliveries and the evacuation of civilians.
Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
📅 27.10.2026 👁️ 4
Jay-Z to perform at Super Bowl half-time show
Jay-Z has been involved with the show for years but has never before performed at the NFL championship game.
Super Bowl 2027: Jay-Z to perform at half-time show
📅 27.10.2026 👁️ 3
Super Bowl 2027: Jay-Z to perform at half-time show
The rapper has been involved with the show for years but has never before performed at the NFL championship game.
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
📅 27.10.2026 👁️ 4
Jordan says 'terrorists' killed in Syria in retaliatory strike over church attack
The attack on a village in Syria killed five people, including women and children, Syrian health officials said.
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
📅 27.10.2026 👁️ 4
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan sjóliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Sjóliðinn Devin Jacob Ballar...
Bandarískur landgönguliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
📅 27.10.2026 👁️ 2
Bandarískur landgönguliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan landgönguliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Devin Jacob Ballard er...
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
📅 27.10.2026 👁️ 4
iPhone Duo: Apple says it will replace handsets with screen problems
Photos shared online showed faults appearing on the screens of Apple's first foldable device.
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
📅 27.10.2026 👁️ 5
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
Flokkur Flavio Bolsonaro forsetaframbjóðanda í Brasilíu, Frjálslyndi flokkurinn, viðurkennir úrslit kosninganna sem fram fóru þar á sunnudaginn. Þetta...
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
📅 26.10.2026 👁️ 5
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 5
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Chris Mason: Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Mason: Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.