Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
Óvissa virðist ríkja um marga lykilþætti í fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir það áhyggjuefni að niðurskurður á fjárlögum muni auka lántökuþörf Betri samgangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráðast í framkvæmdir sem ekki hafi verið fjármagnaðar.
Óvissa ríkir enn um mikilvægar tekjuforsendur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri það áhyggjuefni að ríkisstjórnin hyggist lækka framlög sín til sáttmálans um tvo milljarða króna á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2027.
„Með fjárlögum varð ljóst að ríkisstjórnin hyggst skerða framlög sín til samgöngusáttmálans um 25 prósent á næsta ári sem mun auka lántökuþörf Betri samgangna og er verulegt áhyggjuefni,“ segir hún.
Hildur segir þetta ekki síst áhyggjuefni þar sem enn ríki mikil óvissa um hvernig ríkið ætli að fjármagna sinn hluta sáttmálans. Ríkisstjórnin hefur hins vegar lýst lækkun framlagsins sem tímabundinni og sagt að fjármunirnir komi til síðar.
Ummæli Hildar koma í kjölfar skriflegra svara Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra við þremur fyrirspurnum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi um fjármögnun samgöngusáttmálans.
Í svörunum kemur meðal annars fram að kostnaður við að koma lóðum á Keldnalandi í söluhæft ástand …