Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp á myndband fyrir samfélagsmiðla.Blaðið New York Post greinir frá þessu.Héctor Alejandro Rosales Bonilla, 64 ára fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, hefur verið handtekinn í El Salvador fyrir dýraníð. Maðurinn ógnaði öryggis lítils hunds með því að láta hann dangla á einni löpp af svölum á fimmtu hæð í höfuðborginni San Salvador.
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“