Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjölfar fyrirspurnar frá íbúa um veint vanhæfi hennar. Varpaði íbúinn fyrirspurninni fram í kjölfar frétta RÚV um viðskiptatengsl fyrirtækis Katrínar við Samherja og þá einkum umdeilda fiskþurrkun fyrirtækisins í sveitarfélaginu. Sveitarstjórnin segir fréttaflutning RÚV raunar settan fram á hæpnum forsendum.
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja