Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélagsmiðlum. Strákarnir voru klæddir í hversdagsleg föt og vöktu mikla athygli viðstaddra ferðamanna enda er fljótið kalt og straumhart.
Myndbandið var birt fyrir skömmu en í texta við það kemur fram að þeir hefðu stokkið út í 20. september. Í myndbandinu sjást strákarnir einnig synda um hylinn og annan þeirra eiga í vandræðum með að komast að bakkanum hinum megin vegna þungs straums.
Lögreglan á Norðurlandi eystra staðfesti í samtali við Ríkisútvarpið að Neyðarlínunni hefði borist símtal vegna tveggja manna í Skjálfandafljóti við Goðafoss sama dag.
Tilkynnt hafi verið um tvo menn sem hafnað höfðu ofan í, annar væri kominn upp úr, en hinn ætti enn við strauminn. Stuttu síðar hafi svo verið hringt aftur og látið vita að ekki væri þörf á aðstoð þar sem báðir mennirnir væru komnir á bakkann.